Kvenlegar dygðir

Hér á þessa síðu ætla ég að setja inn mataruppskriftir og fleira sem sýna hversu frábær kvenkostur ég er…svona deep inside!

Einnig væri gaman að fá hér uppskriftir frá öðrum og birta

Klístraður döðlubúðingur (uppskriftin er úr Gestgjafanum. Bessý bauð uppá þessa í saumaklúbb og ég gersamlega féll fyrir henni þó ég sé lítið fyrir döðlur)

350 g döðlur
4 1/4 dl vatn
1 1/2 tsk matarsódi
90 g smjör mjúkt
220 g sykur
3 egg
180 g hveiti

Hita ofn í 180 gráður. Saxa eða klippa döðlur í sundur og setja í pott ásamt vatni sjóða í 2-3 mín strá þá matarsóda yfir og láta standa í 5 mín (ekki á hita).
Hræra smjör og eitt egg saman þar til verður létt og ljós. Bætið eggjum sem eftir eru saman við eitt og eitt. Bæta við hveiti smátt og smátt ásamt döðlumassa við (hann má vera heitur). Hella í smellumót (22-24 sm.) og baka í 50-60 mín.

Sósa
200 g púðusykur
100 g síróp
140 g smjör
1 1/2 dl rjómi
má nota valhnetur út í

Sjóða þetta saman í 5 mín. Hella smá af þessu yfir búðing þegar hann er tilbúinn og rest sett í skál. Hafa rjóma eða ís með

Rifsberjahlaup (uppskrift frá mömmu minni)

1 kg rifsber
1 kg sykur (ég nota ca 700 gr í kg af berjum)
1 bolli vatn
Helmingur af sykrinum eða 1/2 kg og vatn sett í pott og sykurinn látinn bráðna við vægan  hita.
Berin látin í pottinn og suðan látin koma upp við hægan hita. Potturinn tekinn af hellunni og látinn standa með lokinu á í 5 mínútur.
Þetta er gert þrisvar.
Berin síuð og dampað á. Ég læt þetta síast yfir nótt og geri svo seinni hlutann daginn eftir.
Vökvinn settur í pott með hinu 1/2 kg af sykrinum.
Suðan látin koma vel upp og bulla, froðunni fleytt af.
Látið strax í heitar krukkur og þeim lokað strax.

Ostakökur frá MKJ

2 bollar hveiti
1 ½ tsk salt
2 tsk paprika
½ tsk sinnepsduft
2/3 bollar (190 g) smjör
1 ¼ bolli (250 g) gróft rifinn Maribó ostur
1/3 bolli rjómi
½ tsk Worchestersósa

Þurrefni sigtuð saman. Smjör mulið saman við og síðan er osti bætt út í. Bleytt í með rjómanum sem Worcestersósan hefur verið sett út í. Deigið flatt út og skornar út kringlóttar kökur. Bakað í 10-12 mínútur við 210-220°C

Mjög lúffengar með púrtvíni

Venus Vibrance

Frábær rakvél :D

Kókosdraumar (24 stk)

5 dl kókosmjöl, 2 sléttfullar msk maizenamjög (nota oft kartöflumjöl), 1½ dl sykur, 2 msk smjör, ¾ dl síróp,1 tsk vanilludropar, 2 eggjahvítur, 150 g suðusúkkulaði

Blandið saman kókosmjöli og maizenamjöli. Setjið sykur, síróp og vanillu í pott og látið suðu koma upp, sjóðið á fullum hita í 10-20 sek. Takið pottinn af hitanum og bætið kókosblöndunni í. Léttþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim smátt og smátt saman við deigið. Hrærið vel á meðan. Setjið pottinn aftur á hitann og sjóðið áfram í 30-40 sek. Látið deigið kólna (þannig að maður geti tekið á því). Hitið ofninn 200°C og klæðið ofnplötu með smjörpappír. Takið smá klípur af deiginu og mótið úr því kúlur. Bakið kökurnar neðarlega í ofninum í 10-12 mínútur eða þar til þær eru orðnar gulbrúnar. Þegar kökurnar (nammið) hefur kólnað alveg dýfir maður þeim til hálfs í suðusúkkulaði.

Fílakássa ala Namibía

1 meðalstór fíll (loxodontus Africana)
20 pokar af salti
500 kg piparkorn
750 sekkir kartöflur
125 pokar gulrætur
2000 knippi af ferskri steinselju
1 kanína

1. Skerið fílinn í mátulega stóra bita. Tekur u.þ.b. 6 vikur.
2. Skerið grænmetið í bita (tekur aðrar 4 vikur)
3. Setjið kjötið í stóran mannætupott og hellið 5000 og ½ lítra af vatni yfir. Komið upp suðu og sjóðið í 28 daga
4. Skóflið í saltinu og piparnum (gott að nota vélskóflu). Smakkið til
5. Þegar kjötið er orðið meyrt á að bæta í grænmetinu.
6. Sjóðið við vægan hita í eina viku til viðbótar og með steinseljunni rétt áður en kássan er borin fram. Ætti að metta um það bil 3000 manns.
7. Ef von er að fleira fólki er hægt að drýgja kássuna töluvert með því að bæta kanínunni við.
Chili sulta

15 rauð fræhreinsuð chili (ef maður vill hana vel sterka þá hefur maður fræ með)
5 rauðar paprikur
3-4 bollar sykur
1 1/2 bolli borðedik
1 poki blár sultuhleypir

Chili og paprikur hreinsað og maukað mjög vel í matvinnsluvél. Sett í pott og látið sjóða í ca 10 mín með sykri og ediki.
Sultuhleypi skellt í og látið sjóða að hámarki í 1 mínútu. Skellt í krukkur og kælt.
Mjög gott með saltkexi eða ostakexi og rjómaosti

Pecan- og mokkabaka

Deig
75 g pecan hnetur, muldar
175 g hveiti
25 g sykur
150 g smjör
1 eggjarauða
4 msk kalt vatn

Fylling
250 g suðusúkkulaði, smátt saxað
125 g smjör
100 ml sterkt kaffi
3 msk kaffilíkjör (Tia Maria eða Kahlua)
2 egg
3 eggjarauður
40 g sykur
kakóduft til skreytinga

Hitið ofninn í 200°

Deig: Blandið hnetum, hveiti, sykri og mjúku smjöri vel saman. Eggjarauðu og vatni bætt útí og látið standa í kæli í 30 mínútur. Deigið flatt út í bökuform og bakað í 20 mínútur. Ofn lækkaður í 180°.

Fylling: Bræðið súkkulaði og smjör í vatnsbaði, blandið kaffi og líkjöri útí. Kælið. Þeytið egg, eggjarauður og sykur saman þar til það verður ljóst og létt. Hellið þá súkkulaðinu varlega saman við. Handhrærið og hellið svo blöndunni í bökubotninn. Bakað í 7-8 mínútur. Kælið. Sigtið síðan kakóduftinu yfir bökuna og berið fram með rjóma eða vanilluís.

Kartöflukaka
120 g smjörlíki
150 g sykur
250 g soðnar maukaðar kartöflur
150 g haframjöl
1 ½ tsk möndludropar

Smjörlíki og sykur hrært saman og öllu hinu blandað saman við. Bakað við 200° í 30 mínútur.
Smjörkrem eða bráðið súkkulaði sett ofan á.


Hæna í bjór

1 stór gróft hakkaður laukur
2 hökkuð hvítlauksrif
1 dl ólífuolía
125 g beikon í teningum
4 gulrætur í teningum
20 perlulaukar
20 heilir sveppir
1 kjúklingur í bitum
¾ l góður dökkur bjór
2 ½ dl hænsnasoð (sterkt)
Krydd: timian, lárviðarlauf, steinselja, salt og pipar

Laukur og hvítlaukur og beikon gert mjúkt í olíu í þykkum potti og látið sjóða í 5 mín. Bætt í gulrótum, perlulauk og sveppum og látið sjóða í nokkrar mínútur. Kjúklingur steiktur í nokkrar mínútur í olíu á pönnu og bætt í pottinn með grænmetinu og beikoninu. Bjór hellt yfir og soði og kryddi. Soðið undir loki í 45-60 mínútur. Skreytt með steinselju. Borið fram með ofnsteiktum kartöflum og grófu brauði.

Gljáður perlulaukur með furuhnetum og kastaníusveppum (fyrir 6)

1 net perlulaukur (250 g)
1 askja kastaníusveppir
3 msk furuhnetur
1 msk hrásykur
½ tsk. maldonsalt
1 msk. balsamikedik
2 msk. smjör

Afhýðið perlulaukinn og steikið hann í smjörinu við frekar lágan hita í 10 mín. Hreinsið sveppina, skerið þá í tvennt og bætið þeim út í laukinn. Saltið og steikið lauk og sveppi saman í 3 mínútur.
Brúnið sykurinn á pönnunni, hrærið öllu saman og bragðbætið með balsamikedikinu.
Að lokum er furuhnetum stráð yfir laukinn og sveppina. Borið fram heitt sem meðlæti með andabringum, rjúpum og allri annarri villibráð.

Rabbabarabaka á fjórum mínútum

Rabbabari (ca 500 g frosinn eða bara nóg til ad hylja botninn á forminu sem nota á)
200 g smjör
1 bolli hveiti
1 bolli sykur
2 egg
1 msk kókosmjöl
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanillusykur
svo má setja smá engifer ef vill

Rabbabarinn skorinn niður og látinn fylla rúmlega botninn a eldföstu móti. Smjörid er brætt og öllum þurrefnum blandað saman vid. Hrært vel saman. Potturinn tekinn af eldavelinni og eggjunum blandað útí. Þegar búid er ad hræra þessu öllu saman er hrærunni hellt yfir rabbabarann i mótinu og bakað vid 180° i 20-30 min. Borið fram með ís eda þeyttum rjóma.

Gott húsráð

Gott er að skola fyrst með köldu vatni hakkavél og skálar þar sem í hefur verið hrátt kjöt eða fiskur áður en það er þvegið uppúr heitu sápuvatni.