Hins vegar langar mig í skó skó skó skó nei mig langar ekki einu sinni í skó held ég sé veik nei ég er ekki veik ekki einu sinni með svínaflensu né aðra óværu heldur er ég eitthvað svo andlega sinnulega laus við allt sem einkennist af frumlegheitum eða andlegum þroska þrátt fyrir að hafa farið í svett hjá heiðari og nonna sem hugsa um heilsuna en by the way reykja eins og strompar og halda að lakkrís sé hollur kannski ég þurfi að gera eitthvað nýtt fara á námskeið og hlusta á hemisync til að laga í mér heilann en ef til vill er bara best að vera eins og maður er ég ætla að halda áfram að prjóna skupluna á dóttur mína sem ég er búin að rekja upp 9 sinnum og halda áfram og skrifa ógurlega langar setningar í belg og biðu til að æfa mig í því að nenna að skrifa og hætta að horfa á fréttir og icesave umfjöllun og hrun sem fær mig til að hugsa um jóhannes sem er mynd sem mig langar mikið að sjá og fer kannski á í kvöld en er þetta ekki að verða alveg nógu löng setning?
Lifið heil
Archive for the Útrás fyrir ruglu Category
Er ekki með svínaflensu
Posted in Útrás fyrir ruglu on október 21, 2009 by bylgjaÍ dag
Posted in Útrás fyrir ruglu on júní 6, 2009 by bylgja…er ég stödd í sumarbústaðnum Sólbergi í Úthlíð í sól og sumarblíðu. Á svoleiðis degi eyðir maður ekki orku í að skrifa um IceSave samninginn!! Ég veit bara eitt að ég skil ekki hvað þetta lið er að pípa á þingi og fær einskonar brjóstagjafaþoku þegar formaður Framsóknar hefur róminn. Þó hef ég ekki haft barn á brjósti í mörg ár. Svipað gerist þegar BB byrjar að kvarta yfir því að fá að tala um málin…
Kjellan er öll að koma til
Posted in Útrás fyrir ruglu on júní 5, 2009 by bylgjaÉg keypti mér nýja skó í dag, annað par ársins. Rauðir sandalar með smá hæl og blingi á ristinni. Geggjaðir
Ég er öll að koma til
Hin merkilegu læknisstörf!
Posted in Dægurskvaldur, Útrás fyrir ruglu on júní 3, 2009 by bylgjaÍ dag fór ég með son minn til læknis, á heilsugæsluna í Garðabæ. Við biðum í rúma viku eftir tíma enda eru heimilislæknar uppteknar manneskjur. Okkar erindi var ekki akút heldur er drengurinn með vörtu á annarri stóru tánni. Ég velti því fyrir mér þar sem Óskar lá á bekknum og læknirinn sprautaði fljótandi köfnunarefni á illgresið hvort að manneskja með tæplega 10 ára nám á háskólastigi væri ekki over-qualified í þetta verk? Af hverju þarf læknir að sjá um slíka aðgerð??? Þessi litla “aðgerð” krafðist ekki neinnar sérstakrar þjálfunar, ekki var skorið bara spreyjað og kannski mikilvægast að vera ekki skjálfhentur!
Ég bara fór að velta þessu fyrir mér – svona í ljósi umræðu um biðlista og kostnað við heilbrigðiskerfið
Er í svörtu lakkskónum mínum með lágum hæl (keyptir í Boston í september 2008)
Dauð, dauðari dauðust?
Posted in Dægurskvaldur, Útrás fyrir ruglu on júní 2, 2009 by bylgjaÞannig er að í mér blundar bloggari sem af og til kemur fram. Hann hefur týndur og tröllum gefinn síðustu misserin. Þessi bloggari er orðinn svo mikill Facebookari að hann hugsar bara í frösum og ræður ekki lengur við að mynda flóknari setningar en þær sem eru 2 sekúndur að verða til. Þessi bloggari er meira að segja búinn að tapa niður lágmarkskunnáttu í íslensku og man ekki lengur hvort skrifað er í eða ý í orðinu TÝNDUR…
Iss – gengur ekki
Samt hefur heilmikið á daga þessa bloggara drifið. Hann varð til dæmis 43 ára síðasta laugardag (30. maí), hann er orðinn 1. kyu í karate og má því hefja undirbúning að DAN gráðun á næsta ári. Þessi bloggari er búinn að ferma yngsta barnið sitt og skipuleggja sumarleyfi til Tenerife í miðri kreppu. Kaupa sér reiðhjól og hjóla um bæinn eins og hann getur, vinna helling (með hangandi hendi), skipuleggja ættarmót í sumar, drekka mikið kaffi, fara á Listahátíð (Tiger Lillies og Þorstein frá Hamri), sinna fjölskyldunni, strauja (bara smá), fara í sumarbústaðinn og svona mætti lengi telja.
Margt hefur hann ekki gert – eins og að vera handtekinn fyrir óskpektir á almannafæri eða mótmæli.
Verst af öllu er að þessi aumi bloggari hefur bara keypt sér eitt skópar á árinu og er það langt undir meðaltalinu. Það er ekki nógu gott!!
Lifið heil
Skemmtileg vika framundan
Posted in Útrás fyrir ruglu on apríl 21, 2009 by bylgjadkhioea hglaypjklghopueio
huehlæahioa
eutagjkayetghægj
Svona er ég andlaus
Ég held reyndar að ég eigi að vera í Las Vegas en þar hef ég verið á þessum tíma síðustu tvö árin!
án titils…
Posted in Útrás fyrir ruglu on apríl 7, 2009 by bylgjaMér eiginlega blöskrar þessi leti mín og hef nú ákveðið að taka mig á og fara að skella inn einhverju af viti! Gengur ekki lengur að segja ekki neitt í aðdraganda kosninganna.
Get byrjað að segja að það er góð forystugrein Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu í dag um dugleysi íslenskra ráðamann og okkar lélega gjaldmiðil. Þar er þöggun í gangi, við erum búin að ákveða að fresta því að taka ákvaraðnir og á meðan brennur skipið undan okkur. Enginn þorir að rugga bátnum og taka ákvarðanir um Evrópusambandsaðild og Evrur því þá fer allt í háaloft!!!
Ég hef líka ákveðið að taka upp þann sið að segja frá þeim skónum mínum…
Er í lágum leðurstígvélum með litlum hæl sem ég keypti í Top Shop
Næst þegar ég fer til útlanda…
Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Útrás fyrir ruglu on janúar 20, 2009 by bylgjaÉg er að fara til Brussel í næstu viku, miðvikudaginn nánar tiltekið.
Er alltaf í vandræðum að ákveða hvaða föt ég á að hafa með mér og þá sérstalega hvaða skó…hve mörg pör…hvaða lit…háa hæla…þægilega…?? En nú er ég búin að leysa það vandamál og hef bara nýjustu skóna með mér (þessa sem ég keypti í Top Shop fyrir útsölu.
Hins vegar hef ég hef aldrei lent í því áður að vita ekki hvaða stól ég á að hafa með mér!!
Bylgja hin lata
Posted in Útrás fyrir ruglu on janúar 5, 2009 by bylgjaGleðileg jól
Gleðilegt ár
Takk fyrir allt gamalt og gott
Ég þjáist af gífurlegri bloggleti og er eiginlega orðlaus en hugsa margt ekki síst um stjórnmál, efnahagsmál og heimspekilega hluti (nei djók).
Er orðinn alger aurpúki (keypti mér samt skó fyrir útsölurnar). Ég borgaði upp yfirdráttinn minn í bankanum rétt áður en stýrivextirnir hækkuðu og sagði upp greiðsluþjónustunni sem ég var að borga 12 þúsund krónur á ári fyrir að borga mína eigin reikninga auk yfirdráttarvaxta!! Þvílíkt rip-off.
Legg nú fyrir á bankabók en ekki verðbréfasjóð. Er líka búin að færa séreingarlífeyrissjóðinn minn á lífeyrissparnaðarreikning í banka.
Er líka orðinn fitubolla og bætt á mig ca 4 kg í haust af fitu. Stefni að ná fitunni af mér með hækkandi sól með því að mæta vel á æfingar.
Stefni líka að því að borða meira af trefjum og mæta oftar með nesti í vinnuna.
Er orðinn 2. kyu í karate en ég fór í gráðun í desember.
Skoðanakönnun
Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Útrás fyrir ruglu on nóvember 12, 2008 by bylgjaVar að kynnast nýjum fítus í Word Press blogginu – skoðankönnunum. Verð að setja eina inn um brennandi málefni á þessari stundu! Á myndinni að neðan má sjá skóeign mína um áramótin síðustu.
Bendi líka á áhugaverða lesningu hér
