Archive for the Speki ala Bylgja Category

Að gleypa fíl í einum bita

Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Speki ala Bylgja, Útrás fyrir ruglu on september 18, 2008 by bylgja

Í Kastljósinu var haft eftir efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar Tryggva Þór Herbertssyni að það væri engum hollt að gleypa fíl í einum bita…þannig að mér datt í hug að koma þessar uppskrift á framfæri til þjóðarinnar ( þjóðin er að sjálsögðu eins og hún leggur sig hér á síðunni minni).

Mæli með því að þjóðin (eða réttara sagt ríkisstjórnin) fari næst eftir þessari uppskrift sem er ættuð frá Namibíu sem mér finnst bara kostur enda mjög alþjóðavædd – er bæði global og glocal

Namibísk fílakássa

1 meðalstór fíll (loxodontus Africana)
20 pokar af salti
500 kg piparkorn
750 sekkir kartöflur
125 pokar gulrætur
2000 knippi af ferskri steinselju
1 kanína

1. Skerið fílinn í mátulega stóra bita. Tekur u.þ.b. 6 vikur.
2. Skerið grænmetið í bita (tekur aðrar 4 vikur)
3. Setjið kjötið í stóran pott og hellið 5000 og ½ lítra af vatni yfir. Komið upp suðu og sjóðið í 28 daga
4. Skóflið í saltinu og piparnum (gott að nota vélskóflu). Smakkið til
5. Þegar kjötið er orðið meyrt á að bæta í grænmetinu.
6. Sjóðið við vægan hita í eina viku til viðbótar og með steinseljunni rétt áður en kássan er borin fram. Ætti að metta um það bil 3000 manns.
7. Ef von er að fleira fólki er hægt að drýgja kássuna töluvert með því að bæta kanínunni við.

Geimveran Bylgja

Posted in Speki ala Bylgja on janúar 12, 2008 by bylgja

Miðað við umræðuna í fjölmiðlum síðustu daga þá er ég farin að hallast að því að ég sé geimvera sem óvart lenti hérna á fögru landi Ísa.

Í nær öllum fréttatímum og fréttatengdum þáttum er um fátt annað talað en hrun í Kauphöllinni, fall hlutabréfa og mér skilst að allt sé á vonarvöl því gengið á Exista, FLgroup (og öllum hinum) hafi lækkað svoooooo mikið og Gnúpur eigi bara ekki krónu eftir!

Bókstaflega ALLT á að vera rjúkandi rúst eða stefni í það og landsmenn farnir á hausinn og búnir að tapa aleigunni. Spekingar mæta í beinar útsendingar og fjalla um málið og danskir blaðamenn og sérfræðingar dregnir upp og látnir tjá sig um hrunið! Hins vegar þegar rætt er við geimverurnar sem búa á Íslandi í beinni þá hafa þeir engar stórar áhyggjur því þetta snertir þá afskaplega lítið og á huga minn leitar hugsunin “ET phone home” aftur og aftur.

Að mér læðist sá grunur að það séu bara sumir (örfáir) Íslendingar búnir að tapa aleigunni (eða hluta af eigunni), það eru Íslendingarnir sem eiga peningana og djúpu vasana og við hin sem ekki erum stórir hluthafar í einu eða neinu og vitum varla hvarð fjárfestingafélag er og eigum kannski aggapínulitinn hlut í gamla góða Eimskip sem amma gaf í fermingargjöf (og fáum dagatalið á hverju ári) eigum sama yfirdráttinn áfram, sama VISA reikninginn og sömu reikningana. Lumum kannski á séreignarsjóði og smáræði sem við leggjum fyrir í langtímasparnaði og dreifum áhættunni á marga sjóði.

Svo sannarlega er það slæmt að fólk tapi peningum en það er líka áhugavert að velta því fyrir sér hvernig ímyndað virði einhvers (gengi hlutabréfa í fyriræki X) getur orðið að eiginlega engu…undarleg veröld. Ég vorkenni ekki fólki sem tekur lán uppá 300 milljónir og leggur þau öll í eina körfu og tapar þeim þar. Lærðum við ekkert á dotCom, lærðum við ekkert á DeCode??

Ég er samt ekki svo græn að ég geri mér ekki grein fyrir að þetta skiptir máli og hefur áhrif á efnahag okkar, afkomu ríkissjóðs og lífeyrissjóða en þetta er einum og mikið.

Kemur fram í þessu hvað mikið bil er að milli okkar Íslendingar og ég held að það sé sá veruleiki sem fjölmiðlarnir eru að endurspegla fyrst og fremst ekki að það sé raunverulega stórkostleg hætta á ferð.

“Allt” mitt fyrir jólin þetta árið

Posted in Speki ala Bylgja on desember 21, 2007 by bylgja

Í fyrra skrifaði ég færslu um að gera “allt” fyrir jólin sem ég gerði sumt af og annað ekki. Má sjá með því að smella hér

Nú ætla ég að taka saman lista yfir þetta “ALLT “sem ég hef gert fyrir þessi jól…

Baka 3 sortir af smákökum? JÁ

Fara á jólatónleika? JÁ, fór á Karlakór Reykjavíkur síðasta sunnudag með Guðrúnu Lilju vinkonu minni

Búa til hreindýrapate? JÁ, ca 4 kg…þvílík vinna :D

Setja upp jólagardínur? JÁ

Skrifa á jólakort? JÁ og senda þau

Fara á jólahlaðborð? JÁ á Argentínu

Kveikja á jóladagakerti? JÁ á kertinu sem ég keypti í Eyjafirði í vor

Sulta rauðlauk? JÁ

Föndra með skemmtilegum konum? JÁ

Halda matarveislu í vinnunni? JÁ var áðan, voða gaman

Búa til laufabrauð? JÁ

Kaupa jólatré? JÁ, var fellt í Heiðmörk…rúmir 4 metrar

Fara á Jómfrúna? JÁ, eftir tónleikana síðasta sunnudag. ÆÐISLEGT

Skrúbba baðherbergið í hólf og gólf? JÁ (gerði það ekki í fyrra eins og ég hafði ætlað mér)

Fara í árlega jólaboðið til Báru í jólahús Íslands? JÁ og að venju fékk ég þar rauðvín

Baka sörur? JÁ

Drekka rauðvín? JÁ í jólaboðinu hennar Báru, föndrinu og laufabrauðinu osfrv

Komast í sjónvarpið? JÁ eftir að stóra tréð var fellt í Heiðmörk

Kaupa jólaskó? JÁ

Gefa í skóinn? JÁ, dótturinni sem er að verða sjálfráða

Grafa gæsabringu? JÁ

Strauja dúka og rúmföt og löbera? JÁ OG NEI, mamma mín elskuleg tók hluta af léreftinu og straujaði

Rölta um miðbæinn með skemmtilegu fólki? JÁ með GLE á sunndaginn eftir tónleikana og Jómfrúna

Búa til hreindýrasoð? JÁ

Borða tvíbökukurnar hennar Maríu? JÁ JÁ JÁ…með miklu smjöri ;)

Þá læt ég lokið mínu maraþonbloggi á aðventu og segi

GLEÐILEG JÓL

 

Afkóðun mín…

Posted in Speki ala Bylgja on desember 13, 2007 by bylgja

Fyrir 985 dollara (auk slefs á spaða) er hægt að fá að vita sinn erfðafræðilega prófil og afkóðaðar erfðafræðilegar líkur á eftirfarandi sjúkdómum:

Age-related Macular Degeneration, Asthma, Alzheimer’s Disease, Atrial Fibrillation, Breast Cancer, Celiac Disease, Colorectal Cancer, Exfoliation Glaucoma XFG, Inflammatory Bowel Disease, Multiple Sclerosis, Myocardial Infarction, Obesity, Prostate Cancer, Psoriasis, Restless Legs, Rheumatoid Arthritis, Type 1 Diabetes and Type 2 Diabetes.

Ekki hvarflar að mér að borga 985 dollara (né senda slefið úr mér) til að komast að því að HUGSANLEGA muni ég þróa með mér ólæknandi alvarlegan sjúkdóm í ókominni tíð! Ignorance is bliss eins og vitur maður sagði eitt sinn.

Þar fyrir utan veit ég að astmi er í ættinni sem og hjarta- og æðasjúkdómar og borgaði ekki krónu fyrir þá vitneskju.

Að auki er ég svo gáfuð og greind (eins og sonur minn sagði einu sinni) að ég veit að því lengur sem maður lifir því meiri líkur eru á að maður fái sjúkdóma borð við krabbamein, aldurstengda hrörnun í augnbotnum eða Alzheimer svo einhverjir séu nefndir!

Held það sé asskoti fúlt að vera vel feitur en hafa ekki erfðafræðilegan breytileika á litningi sem tengist obesity. Hvað er maður þá? ALGER AUMINGI SEM ÁT Á SIG GAT???

Er í Timberland skóm (mjög fótvænir).

Ræð ekki við mig

Posted in Speki ala Bylgja on desember 10, 2007 by bylgja

Verð að skrifa þó ég hafi ekki ætlað að skrifa neitt í dag. Er greinilegur tölvufíkill ;)

Dagurinn hefur að mestu farið í bakstur með mömmu…Sarah Bernard is my middle name eftir daginn.

Sit hér í sófanum og horfi á Aldamótabörn í RUV sem er þáttur sem að pirrar mig eins og svo margt annað smávægilegt í lífinu!!!!! Í þættinum er verið að skoða börn sem fædd eru 2000 til að sjá hvað er ólíkt með þeim og það skondna er að það sem verið er að skoða (hvað þau eru ólík) er líka notað til að skýra út af hverju þau eru ólík. Seinast þegar ég vissi hét það hringskýring og þar með EKKI viðurkennd vísindaskýring. Ekki í fyrsta sinn sem hann dregur ansi stórar ályktanir þessi hátternisfræðingur út frá pínulítilli hegðun. Er samt þokkalega skemmtilegur þáttur og í kvöld er þetta ekki eins áberandi og fyrir viku.

Er að hafa mig í jólakortin sem ég hef alltaf í bundnu máli. Þarf að koma mér í gírinn til að komast á loft með skáldagyðjunni :D

Stefnir í tónleika með GLE á sunnudaginn, gaman gaman.

Á fimmtudaginn síðasta fór ég í jólaboðið í Jólahúsið mikla sem ég skrifaði um í fyrra HÉR.

Á laugardaginn fór ég í stórskemmtilegt afmæli eins og ég var búin blaðra um og var að sjálfsögðu í leðurbuxunum og nýju skónum :D

ER BERFÆTT

Hvað varð um börnin?

Posted in Speki ala Bylgja on desember 6, 2007 by bylgja

Hvernig stendur á því að aldrei er talað um börn í dag heldur alltaf krakka? Einu skiptin sem notað er orðið barn eða börn er verið að tala um litlu börnin og þá er vísað í börn undir 2ja ára aldri en þegar barn er á aldrinum 5-12 þá er alltaf notað orðið krakki. Er sérlega áberandi í fjölmiðlum. Pirrar mig því mér finnst orðið krakki næstum skammaryrði en ekki alþýðlegt mál. Börn eru börn þó þau eru orðin 11 ára gömul hvað þá 13 ára. Barn er fallegt orð og börn eru falleg.

ARGH ARGH doh!

Posted in Speki ala Bylgja on desember 3, 2007 by bylgja

Hvernig stendur á því að ég finna ALDREI bíllyklana mína þegar ég er að fara út á morgnana???

Það er sama hvað ég reyni að vera skipulögð og sniðug þeir eru alltaf á nýjum stað og oft ótrúlegustu stöðum og það er eins og ég geti bara alls ekki sett þá á sama staðinn. Það sem gerist líka ótrúlega oft að ég er með lyklana í höndunum og er á leiðinni út þegar ég man eftir einhverju sem ég þarf að ná í, ráfa inn aftur með lyklana í höndunum og legg þá frá mér á enn einn staðinn og þarf þá að hefja leitina uppá nýtt……. ARGH ARGH

Ég hugga mig við að það verði ekki hægt að nota þetta gegn mér þegar afkomendur mínir fara að tala um elliglöp hjá mér í framtíðinni því ég hef alltaf verið svona :D

Helgin var svo upptekin hjá mér að ég náði ekki að skrifa neitt, hvorki af viti né óviti. Jólahlaðborð, laufabrauð, Fimbulfamb, matarboð (sviðaveisla),  Ikea ferð með mömmu og pabba, jólaseríur, jólaljós og aðventuljós og margt fleira kom í veg fyrir að ég náði að meitla gullkorn á lyklaborðið. Tókst að komast á bls 110 í Sögunni af Pí í gærkvöld og loksins er eitthvað farið að gerast.

Er í strigaskóm því nýju skórnir fóru alveg með fætur mína á föstudagskvöldið. Verð að ná mér fyrir næsta föstudag þegar ég fer í afmælið hennar Maríu, ætla að vera í þeim þar. Því mun ég vera í “sensible shoes” með innleggi og lofthæl alla vikuna.

Dularfulla sokkalandið

Posted in Speki ala Bylgja on nóvember 24, 2007 by bylgja

Ég held að þvottavélin mín hafi að geyma leynigöng að dularfulla sokkalandinu. Hlýtur bara að vera því ég enda alltaf með staka sokka þegar ég þvæ og það eru einungis stakir sokkar í hrúgunnni á straubrettinu. Þeir stinga af í dularfulla sokkalandið meðan þeir eru þvegnir og hinn helmingurinn situr eftir með sárt ennið! Stórmerkilegt fyrirbæri. Ég er viss um að það er mikið líf í tuskunum í dularfulla sokkalandinu og mikið félagslíf fyrir einhleypa/einsokka.

Er í Hello Kitty sokkunum mínum sem eru enná par enda hef ég þvegið þá í höndunum.

Í gær gerðist ég stílisti

Posted in Persónulegt, Speki ala Bylgja, Útrás fyrir ruglu on nóvember 22, 2007 by bylgja

Ég fór sem sérlegur stílisti vinkonu minnar í innkaupaleiðangur í Smáralindina í gær. Planið var að dressa hana upp því hún hefur lagt af og því orðin fátæk af fötum (auk þess á maður aldrei of mikið af fötum) . Við upphaf ferðar fékk ég eftirfarandi sms frá hennar ektamanni: SHOP TIL YOU DROP og svo annað í kjölfarið: ENGA PELSA EÐA TÖSKUR.

Mér tókst að láta þessa elsku kaupa sér tvennar buxur, eina peysu og fallegan kvenlegan kjól sem hún hefði aldrei mátað ef ekki hefði verið fyrir mig. Sumar konur!! Okkur tókst ekki að klára málið í þessari atrennu og eftir er að finna jakka, pils og flott skvísustígvél með hæl. Skemmst er frá því að segja að ferðin endaði með ósköpum því ég keypti mér nýja skó :D Ekkert smá flottir og smellapassa við leðurbuxurnar.

Er að spá í að rukka manninn hennar um stílistagjald, 13.900.- kr

Endaði svo daginn á að fara á Karatebíó fyrir fullorðna í lúksussalinn í Smárabíó. Sáum á Buttefly on a Wheel en hún verður frumsýnd um miðjan desember. Hún fær 2 stjörnur af 4 mögulegum hjá mér.

er syfjuð í dag því ég fór seint að sofa (var í bíó)

Ég reyni og reyni og reyni en illa gengur

Posted in Persónulegt, Speki ala Bylgja, Útrás fyrir ruglu on nóvember 21, 2007 by bylgja

Fyrir þá sem ekki vita þá er ég bókaormur og les þess vegna símaskrána ef ég hef ekkert annað að lesa. Fyrir margt löngu benti Ævar mér á bók sem heitir Life of Pi og er marfræg saga og verðlaunabók og fékk meðal annars Booker verðlaunin og allir að míga á sig yfir ef ég hef skilið umræðuna rétt.

Að sjálfsögðu hlustaði ég á Ævar (enda með afbrigðum vitur og vel lesinn) og keypti mér þessa sögu um hann Pí. Skemmst er frá því að segja að ég reyni og reyni að lesa bókarfj…. en illa gengur. Er búin að byrja á henni 5 sinnum og er alltaf á sama stað, búin að lesa um hvernig á nafnið á Pí kom til, sund, sundlaugar og dýrin í dýragaðinum. Þá sofna ég alltaf. Get ekki lesið bækur sem gerast ekki í forminu, er svo njörvuð í boxið að surrealíkskar sögur eru fyrir utan minn heim. Á sama hátt gafst ég upp á Veronica decides to die, var gjörsamlega ekki að meika hana. Rosalega er ég leiðinlega jarðbundin!!!

sorry Ævar en ég mun reyna að komast lengra og vona að ég komist á flekann með honum Pí :D

Mun reyna áfram, þetta skal hafast hjá mér ………………………………….vonandi

Er í Bossanova skónum mínum með litlu slaufunni

Auk þess er ég búin að setja mér háleitt markmið. Ég ætla að reyna að setja met í skrifum hér á bloggið og skrifa eitthvað á hverjum degi fram að jólum eða um það bil. Takmarkið er að hafa færslurnar eins innihaldlausar og ómerkilegar og hægt er. Mér finnst það ákveðin áskorun að skrifa texta um “ómerkilega hluti” og gera þá örlítið áhugaverðari. Einnig er þetta æfing því ég stefni að því að fara á námskeið (með Hrefnu) hjá Þorvaldi Þorsteinssyni í skapandi skrifum eftir jól :D