Archive for the Sorglegt Category

…………….ótrúleg saga…………….

Posted in Sorglegt on ágúst 28, 2008 by bylgja

In 1986, Peter Davies was on holiday in Kenya after graduating from Northwestern University .
On a hike through the bush, he came across a young bull elephant standing with one leg raised in the air. The elephant seemed distressed, so Peter approached it very carefully.
He got down on one knee, inspected the elephants foot, and found a large piece of wood deeply embedded in it. As carefully and as gently as he could, Peter worked the wood out with his knife, after which the elephant gingerly put down its foot. The elephant turned to face the man, and with a rather curious look on its face, stared at him for several tense moments. Peter stood frozen, thinking of nothing else but being trampled. Eventually the elephant trumpeted loudly, turned, and walked away. Peter never forgot that elephant or the events of that day.
Twenty years later, Peter was walking through the Chicago Zoo with his teenaged son. As they approached the elephant enclosure, one of the creatures turned and walked over to near where Peter and his son Cameron were standing. The large bull elephant stared at Peter, lifted its front foot off the ground, then put it down. The elephant did that several times then trumpeted loudly, all the while staring at the man.
Remembering the encounter in 1986, Peter could not help wondering if this was the same elephant. Peter summoned up his courage, climbed over the railing, and made his way into the enclosure. He walked right up to the elephant and stared back in wonder. The elephant trumpeted again, wrapped its trunk around one of Peter legs and slammed him against the railing, killing him instantly.
Probably wasn’t the same elephant.

This is for everyone who sends me those heart-warming bullshit stories.

Heimsmet í hnerri

Posted in Sorglegt on febrúar 21, 2008 by bylgja

Ég er örugglega búin að setja heimsmet í hnerri. Á síðasta sólarhring er ég búin að hnerra óteljandi oft og meira að segja tókst mér að hnerra í svefni í nótt. Vaknaði nokkrum sinnum við lætin í mér. Ég hugsa að meðaltalið sé 5 á klukkustund.

Ég er sem sé bullandi kvefuð og er búin dorma og sofa það sem er af deginum, svona á milil hnerra og þess sem ég snýti mér. Er samt ekki með nema 37,4 skv munnmæli. Kannski hafa amerísku Benadryl Allergy and Cold töflurnar slegið á hitann. Þetta byrjaði síðasta sunnudag og hefur farið vaxandi í vikunni og ég ætla rétt að vona að hámarkinu séð náð. Planið er að liggja í dag og mæta í vinnu á morgun því ég hef nóg að gera þar eins og almennt gerist hjá vinnandi fólki. Síðan ætla ég rétt að vona að ég nái að gera allt sem ég ætla að gera um helgina….Food and fun a La Primavera annað kvöld, nýjar tækja- og stöðvaæfingar á laugardaginn hjá Breiðablik, Evróvision matarboð með kærum fjölskylduvinum á laugardaginn, karateæfing í hádeginu á sunnudag og svo foreldrar og tengdafólk í mat á sunndaginn þar sem ætlunin er að matreiða franskar andabringur sem keyptar voru í Danmörku í október.

Því vil ég biðja alla um að senda mér lækningu STRAX.

Svo væri ekki verra að fá einhvern til að laga útlitið því kvef, hor og hnerrar gera mann ekki mjög fallegan. Ég er sem sé með ljótuna oní herlegheitin. Gæti alveg hugsað mér að fá eina góða Öskubusku fairy með sprota í heimsókn. Samt ekki fyrr en á morgun.

Frekar krípí

Posted in Sorglegt on febrúar 6, 2008 by bylgja

Um daginn horfði ég á þátt á SKY sem heitir My fake baby og googlaði eftir það dúkkurnar sem fjallað er um í þessum þætti.

Ég get ekki að því gert að mér finnst þetta eiginlega frekar “krípí” það er að segja dúkkurnar ekki konurnar sem eiga þær og auðvitað eru þær ekki allar svona “extreme” eins og Sue.

“I want them well behaved and clean and the reality isn’t like that,” she said. She took her “children” for walks and even had a bottleholder for their formula (fabric conditioner, not milk). She spent nearly £300 on clothes for a new baby, Sophie, who she travelled to America to pick up. But Sophie had a crack in her head – she wasn’t perfect. Sue sent her back. “

Hér má lesa greinina sem ég tek tilvitnun úr og hér og hér má til dæmis skoða síður með svona dúkkum fyrir þá sem hafa áhuga. Annars er það bara að gúgla re-born dolls

EN HVAÐ FINNST YKKUR?? Sætar, óhugnanlega raunverulegar

grace.jpg p7176438.jpg

Í mér er lumbra og leiði

Posted in Persónulegt, Sorglegt on október 16, 2007 by bylgja

Hvað er til ráða?

Hver vill lækna mig?

Hvað læknar mig?

Ég er ógeðslega fúl, ég er rosalega svekkt, þetta hljóta að vera mistök!

Posted in Sorglegt on september 7, 2007 by bylgja

Mér tókst ekki að velta þessu word press pakki úr sessi en vil þakka ykkur fyrir sem tókuð áskorun minni eða neyðarkalli. Maður veit núna hverjir eru vinir manns! Þó vil ég taka það fram að ég er í dag í 33 sæti yfir the fastest growing blogs…KOMA SVO haldið áfram að fara inn og út :D

Ekki nóg með að ég sé ekki inná listanum hjá word press þá er ég ekki á listanum í Mannlífi yfir bestu bloggin né heldur verstu bloggin sem á sér náttúrulega eðlilegar skýringar. Ég er best og ætti því að vera á besta listanum!! Þetta hljóta að vera mistök og enn eitt dæmið um kvenfjandsemi í minn garð ;)

Því gerðist ég vísindamaður og framkvæmdi eigindlega (e. qualitative) rannsókn með þemaskiptum djúpviðtölum við 5 einstaklinga sem mér finnst líklegt að séu sammála mér (sérstaklega um mitt ágæti). Viðtölin voru tekin upp á segulband og vélrituð upp orðrétt. Frásögnin var síðan brotin niður og þáttuð í stef. Þessi stef eru notuð sem niðurstöður í rannsókninni. Niðurstaðan úr þessum stefaþema djúpviðtölum sýna það svart á hvítu að ég er besti bloggari í heimi EVER!!

Þessi rannsókn hefur opnað augu mín fyrir því að eigindlegar rannsóknir eru það sem koma skal.