Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um atburði síðustu daga. Eflaust er mikið rétt í því sem bent hefur verið á með Seðlabankastjórann og afskipti hans og úrlausnina, þjóðnýtinguna. Bankinn var beittur harðræði það er alveg ljóst eins og Þorvaldur Gylfason benti á í Fréttablaðinu. Tímasetningar, hverjir höfðu með málið að gera og margt fleira krefst skoðunar. Eins má ekki gleyma því að það eru ytri aðstæður í heiminum sem hafa komið efnahagskerfinu í koll eins og t.d. gífurlegur fjáraustur Bandaríkjamanna í stríðið í Írak (by the way það eru fyrst og fremst karlar sem fara í stríð og eru sannkallaðir stríðsherrar).
Burtséð frá því öllu er ekki hægt að líta fram hjá því að bankinn fór fram á lán sem svarar 300 þúsund krónum á hvert mannsbarn og sjálfsögðu þarf Seðlabankinn að hafa tryggingu fyrir þeirri upphæð og ég held að Glitnir hafi ekki hafi neitt merkilegra að bjóða nema lengri gálgafrest. Það sem ég vil benda á og einhvern vegin virðist hafa týnst í umræðunni er að Seðlabanki Íslands er okkar banki- þjóðarinnar – við erum ríkið og ríkinu ber að gæta okkar hagsmuna en ekki hluthafa í einkahlutafélagi. Það liggur í hlutarins eðli að hluthafi er alltaf að taka áhættu með sitt fé. Því segi ég auðvaldið hafi sýnt PR stunt ársins með því að snúa umræðunni á hvolf og koma því í kollinn á okkur að þeirra hagsmunir hafi skipt meira máli en hagsmunir þjóðarinnar þannig að allt í einu snerist þetta um hefndaraðgerð gegn auðvaldinu á Íslandi sem safnað hefur gífurlegum auði í skjóli frjálshyggjunnar á síðustu árum.
Jóna Jónsdóttir sem rétt skrimtir af launum sínum og hefur náð að standa skil af ört hækkandi lánum var látin eta með teskeið að hennar hagsmunir skipti minna máli en hluthafanna! Og blessunin hún Jóna gleypti grautinn með bestu lyst og bað um meira.
Grauturinn var í boði kapitalista Íslands sem voru ekki lengi að hlaupa undir pilsfaldinn á ríkinu þegar kapitalisminn sigldi í strand!!!
Mér verður sjálfri flökurt og langar ekki í desertinn.
Spáið í það ef auðvaldið hefði fengið að ráða þá hefði Íbúðalánasjóður verið lagður niður á sínum tíma…ég get ekki hugsað þá hugsun til enda.







