Archive for the Óflokkað Category

Sonur minn, snillingurinn

Posted in Hampistlar, Óflokkað on október 31, 2008 by bylgja

Hef síðustu vikur og mánuði verið óheyrilega löt við að skrifa en ætla nú að herða mig í skrifunum. Er líka búin að ákveða að skrifa sem minnst um efnahagamál því það er til að æra óstöðugan að pirra sig á því. Hins vegar ætla ég að segja að ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur, skammast mín fyrir óstjórnina og ráðleysið og það bananalýðveldi sem ég bý í. Held að þetta muni hafa gífurleg áhrif á sjálfsmynd okkar sem þjóðar.

Hins vegar fylgist ég vel með og furða mig á mörgu og held að vandamál okkar Íslendinga kristallist vel í því að feður eiga að rannsaka syni sína og engan hægt að finna sem er ekki tengdur klíkunni!!

Þetta er allt tengt þvers og kruss, sama fólk í stjórnum stofnana og fyrirtækja og alger samtrygging skulda, eigna og sömu nöfnin poppa upp aftur og aftur. Afdankaðir og úr sér gengnir stjórnmálamenn og oft harðfullorðnir fólk sem situr í stjórnum bankanna. Jafnvel formenn stéttarfélaga sitja í stjórn banka sem fultrúar síns lífeyrissjóðs. Auðvitað er eðlilegt að stór hluthafi hafi eitthvað með stjórn banka sem hann á í að segja en formaður verkalýðsfélagsins á ekki að fara í öll djobbin.

Stjórn FME er til dæmis svona skipuð samkvæmt þeirra eigin vefsíðu:

Jón Sigurðsson, hagfræðingur, formaður, (situr jafnframt í stjórn Seðlabankans)
Sigríður Thorlacius, lögfræðingur, varaformaður,
Ingimundur Friðriksson, bankastjóri Seðlabanka Íslands.

Varamenn:
Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, (sem jafnframt er einn stærsti hluthafinn í Landsbankanum, hefur setið í stjórn og skv ársskýrslu bankans formaður endurskoðunarnefnd bankans)
Þuríður Jónsdóttir, héraðsdómslögmaður,
Sigríður Logadóttir, aðallögfræðingur Seðlabanka Íslands

Þetta er bara ekki í lagi og ég ætla rétt að vona að við stokkum upp þetta kerfi og endurskoðun þessa samtryggingu. Held að bankarnir ættu að leggja minna í lúkkið á ársskýrslunum og meira í innihaldið.

Þar sem þetta er er orðin löng færsla um það sem ég ætlaði mér ekki að skrifa verður sagan af syni mínum að bíða betri tíma.

Er í svörtum öklastígvélum með smá hæl

Dúnk dúnk – Dúnk dúnk – Dúnk dúnk – Dúnk dúnk

Posted in Óflokkað on ágúst 6, 2008 by bylgja

Hjartað slær frekar hægt þessa dagana :)

Heilinn er enn fyrir vestan og verkvitið ekkert eftir sumarfrí.

Horfði í snyrtibudduna mína í morgun, tók upp maskarann og hugaði: Hvernig notar maður þetta áhald? Tók af vana hárþurrkuna en þurfti leiðbeiningar við að stinga henni í samband.

ergo: ég er búin að eiga gott sumarfrí

Ég er með bólu á rassinum…

Posted in Óflokkað on júní 16, 2008 by bylgja

NEI NEI hef enga bólu…………………

datt þetta bara í hug þar sem ég ligg í rúminu og horfi á leikarana mæla á frönsku í Greys Anatomy. Það eru allir svo einstaklega eymdarlegir í þættinum (ekki síst starfsfólkið) og ef maður fer að ráða í hátterni og svipbrigði sér maður greinilega að einn er illa haldinn af eyrnaverk, annar er með bólu á rassinum sem orsakar undarleg flogaköst og sá þriðji alvarlegt ilsig. Hef aldrei horft á þennan þátt áður og var ekki lengi að ná söguþræðinum :-)

Jæja ég er sem sé komin til Brussel og ligg hér í bælinu á hótel Silkien. Á morgun eftir hádegi hefjast fundir vegna Evrópsku stefnuskrárinnar um heilbrigði hjartans sem standa yfir til miðvikudags. Ferðin út gekk ágætlega (eða þannig). Ég misst af fluginu hingað til Brussel því það var mikil seinkun á Kaupmannahafnarfluginu í morgun. Lentum á Kastrup 15:15 en flugið hingað var 15:10! Var ekki alveg að gera sig. Veit ekki alveg hvað þetta er með mig og fllug tengt Kastrup ;-)   Fyrir vikið þurfti ég að hanga á Kastrup en því miður sá ég enga flotta skó né leðurbuxur eins og þegar ég kom hingað seinast. BÖMMER!!!!

Fékk mér smá göngu áðanog er hótelið staðsett alveg við hliðina á höfuðstöðvum Evrópusambandsins. Tókst líka að ramba á íslenska sendiráðið og tillti mér svo niður á enskan pöbb þar sem góð stemning var og menn horfðu á leik Þjóðverja og Austurríkis. Settist þar niður og fékk mér einn léttan belgískan og horfði á restina af leiknum. Annars eru það Hollendingar sem eiga hug minn allan og mér finnst þeir alltaf lang flottastir. Hef haldið með þeim lengi en hef ekki hugmynd um af hverju.  Hins vegar skal ég alveg viðurkenna það að Tyrkland hefur náð mér líka…held það hafi gerst þegar markvörður þeirra gekk af velli eftir rauða spjaldið……………………GOD sá var fullkominn,  minnti á grískan guð þó hann væri Tyrki  ;-)

Er orðin þreytt og ætla að slökkva á frönskunni í sjónvarpinu, enda alveg hætt að skilja neitt í henni lengur því Greys Anatomy er búið og nú eru belgískir unglingar að spjalla i málefnanlegaum þætti um málefnaleg málenfi og ég skil aldrei neitt málefnalegt þannig að ég er best geymd sofandi.

Over and out…!

PS. finnst það fyndið að í Brussel skuli ekki vera nein NON smoking regla á veitingastöðum (það virðist allavega reykt á öllum veitingastöðum). Af öllum stöðum hefði ég haldið að hér í miðstöð regluverkis Evrópu væri bannað að reykja á opinberum stöum

Er þetta ekki dæmigert fyrir Ísland?

Posted in Hampistlar, Óflokkað on júní 6, 2008 by bylgja

Á ferð minni gær um Smárann í gær rak ég augun í þetta “mannvirki” sem búið er að klambra saman við Smáralindina til að stytta gangandi vegfarendum, sem koma úr Lindahverfinu, leiðina inní himnaríki verslunarmiðstöðvarinnar. Ef þessar tröppur væru ekki þyrftu þeir að ganga mun lengra til hægri og svo upp með Shell bensínstöðinni og yfir allt bílastæðið til að komast inn í Nárann ;)

Mér finnst þetta segja alla söguna um þankaganginn í skipulagsmálum Íslendinga. Bíllinn er yfirum og allt í kring og það er aldrei hugað að því að gera fólki kleift að fara á tveimur jafnfljótum í hönnun eins eða neins. Gangandi fólk er einhvern vegin afgangssærð í þessu samhengi. Svo maður tali nú ekki um hjólreiðamenn eða hreyfihamlaða.

Það hefði nú ekki verið átt að vera mikið mál að huga að þessari aðkomu að Smáralindinni ef HUGSUNIN hefði verið til staðar. En þessa hugsun vantar nær algerlega í allt skipulag mannvirkja á Íslandi. Til dæmis þarf maður virkilega að hafa fyrir því í Smáralindinni og Kringlunni að ganga á milli hæða og sleppa rúllustigum og lyftum. Samt er alltaf útfrá lýðheilsu verið að hvetja fólk til að hreyfa sig meira og að sleppa lyftunum og ganga milli hæða en það er bara ekki hægt oft á tíðum.

Mjög gott dæmi um þennan þankagang er nýja Hagkaupsbúðin í Garðabænum sem er að rísa við Hafnarfjarðarveginn við Sveinatungu. Hún er hönnuð frá A til Ö út frá bílaumferð og er staðsett í jaðri byggðar og er hönnuð þannig að fólk geti rennt drossíunni beinustu leið af Hafnarfjarðarveginum að húsdyrunumog ég skal éta hatinn minn ef það verður ein einasta gönguleið tilbúin þegar hún opnar 17. júní (þar sem ég verð í Brussel þann dag stóla ég á að lesendur mínar sannreyni þetta) .

Við þurfum að hugsa hönnun og skipulagningu á þann hátt að fólk geti gengið ef það vill en ekki leggja stein í götu þeirra sem vilja ganga. Fjölmörg dæmi um þetta og ég vil hvetja alla sem lesa þennan pistil að horfa á umhverfi sitt með þetta í huga. Allt miðast við að auðvelda aðgengi bíla.

Ég vil gjarnan ganga lengra og gera fólki oftar erfitt fyrir að nota bíla og takmarka aðgengi þeirra að sumum stöðum eins og miðbænum.

En nóg í bili….helgin verður (ó)róleg í sumarbústaðnum í Úthlíð :D

Hvet allar konur að fara í Kvennahlaupið – ég ætla að skokka á Laugarvatni með vinnufélaga mínum

Bylgja eftir 2 ár

Posted in Óflokkað on febrúar 4, 2008 by bylgja

Ég stefni að því að gera Sochin eins vel og þessi snillingur eftir ekki meira en 2 ár. Maður á alltaf að setja markið hátt og setja sér raunhæf markmið ;)

Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta ótrúlega flott hjá honum

Hefur eitthvað breyst á einu ári?

Posted in Óflokkað on janúar 2, 2008 by bylgja

…konur og börn eru 80% flóttamanna heims • Konur vinna 2/3 hluta allra vinnustunda en eiga aðeins 1% eigna í heiminum og fá aðeins 10% af heimstekjum í sinn hlut • Konur framleiða og selja 3/5 hluta af fæðu í heiminum • Þriðja hver kona í heiminum verður á lífsleiðinni fórnarlamb kynbundis ofbeldis • Ofbeldi gegn konum eykst til muna á stríðstímum og í kjölfar átaka • Stúlkur undir 16 ára aldri verða fyrir 40-60% allra kynferðisglæpa • Ungar konur í Afríku á aldrinum 15-24 ára eru þrisvar sinnum líklegri til að smitast af HIV/alnæmi en karlar á sömu slóðum og á sama aldri • Um 2 milljónir stúlkna eru umskornar á hverju ári • Konur eru 16% þingmanna í heiminum…

Ég held ekki!

My back is…

Posted in Óflokkað on desember 11, 2007 by bylgja

killing me!

Fékk soddan tak undir hægra herðablaðið í morgun þegar ég lyfti þurrkunni, hárþurrkunni, ekki ÞURRKARANUM eins og ungur maður taldi víst að hefði verið!! NEI það var sko hárþurrkan. Ég er aumingi :(

Á morgun mánudag

Posted in Óflokkað on desember 9, 2007 by bylgja

ætla ég að vera í fríi og verja deginum í að baka og dúlla mér :) Langar líka á Jómfrúna og fá mér fleskesteg eða HC Andersen brauð eða Rækjupíramíta.

Ætla helst ekki að kveikja á tölvu og því verður engin færsla á morgun. Þessi verður að duga fyrir sunnudag og mánudag og ég held hún nái hæstu hæðum í innihaldsleysi í bloggmaraþoni mínu á aðventunni.

Talandi um skó…uppáhaldsdótið mitt

Posted in Óflokkað on desember 8, 2007 by bylgja

Guðrún Lilja vinkona mín gaf mér gjöf í haust eftir góða ferð til útlanda….hún keypti hana í skóbúð úr seríunni MAD ABOUT SHOES. Mér finnst hún æðisleg  :D

kanna.jpg

Að heilsast og kveðjast

Posted in Persónulegt, Óflokkað on nóvember 30, 2007 by bylgja

Þegar ég var unglingur vann ég á sumrin á Vífilsstöðum við aðhlynningu Þar eignaðist ég góðan vin, fullorðinn mann, lækni sem hafði fengið alvarlega heilablæðingu sem gjörbreytti hans lífi. Hann var stundum erfiður sjúklingur og leið oft illa og óskaði þess að hafa fengið að deyja frekar en að lifa sem ósjálfbjarga maður.

Hann Þorils varð sérlegur vinur minn og á milli okkar varð gott og ljúft vináttusamband. Honum þótti óendanlega vænt um mig hafði einstaklega gaman af að heyra söguna af því þegar hann hafði læknað mig af lungnabólgu nokkrum árum áður þegar hann var í fullu fjöri og var starfandi lungnalæknir á Vífilsstöðum. Við spjölluðum oft og innilega og ég man alltaf að þegar ég varð stúdent gaf hann sig ekki fyrr en ég kom með stúdentshúfuna mína og setti hana á kollinn. Svo stillti ég mér upp réttu megin við hann svo hann gæti séð mig með betra auganu sínu og knúsað mig með heila handleggnum sínum. Við göntuðumst með það okkar á milli að ég myndi giftast öðrum syni hans og hann verða tengdapabbi minn. Við vorum vinir. Og það sem ég lærði mest á vináttu minni við hann Þorgils er hvað lífið er hverfult og allt breytingum háð. En ég lærði líka að þó lífið breytist þá heldur það áfram og það sem hryggir mig eiginlega mest í dag er að hafa aldrei haft tækifæri á að segja sonum hans (sem voru unglingar eins og ég) hvað hann Þorgils gaf mikið þó hann væri allt öðru vísi en áður. Ég hugsa að ég hafi verið ein af fáum sem fékk og náði að kynnast honum eftir veikindin. Það er erfitt að verða annar en maður var og halda reisn sinni. Svo dó hann Þorgils árið 1990 og ég kvaddi hann aldrei og það hefur alltaf setið í mér. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og þakklát fyrir umhyggju hans fyrir mér.

Minningin um Þorgils hefur leitað sterkt á mig síðustu vikurnar og á mánudaginn fór ég loksins eftir öll þess ár að leiðinu hans og kvaddi þennan umhyggjusama vin minn. Ég kveikti á kerti og setti á leiðið hans, með vinakveðju frá mér til hans. Það var góð stund.