Archive for the Fyndið Category

I’m rich…I’m filthy rich!!!

Posted in Fyndið on október 29, 2009 by bylgja

TRANSFER OF THIRTY SIX MILLION SEVEN HUNDRED AND FIFTY NINE THOUSAND POUNDS STERLINGS

Greetings,

Hello Friend

Permit me to inform you of my desire of going into business relationship with you. I Come across your profile and have Decided to get in touch with you after my prayer, to see if you can help me alliviate this problem. I can’t imagine how you will feel receiving a sudden letter from a remote country far away and probably from someone you are not closely related with. But all the same, I believe we do not need to be of blood relatives before we can establish cordial relationship,

My name is Mr.Kieran Dutch and I work in the International Operation Department in a Bank here in London.I feel quite safe dealing with you in this important business Though,this medium (Internet) has been greatly abused, I choose to reach you through it because it still remains the fastest medium of communication.However, this correspondence is unofficial and private, and it should be treated as such. At first I will like to assure you that this transaction is 100% risk and trouble free to both parties.

WE WANT TO TRANSFER OUT MONEY FROM OUR BANK HERE IN LONDON THE FUND FOR TRANSFER IS OF CLEAN ORIGIN THE OWNER OF THIS ACCOUNT IS A FOREIGNER, a program leader, Until his death,The Late Prime Minister, Mr. Rafik Hariri, has a huge investment here in the United Kingdom and all over theworld, as a matter of fact he has the sum of (THIRTY SIX MILLION SEVEN HUNDRED AND FIFTY NINE THOUSAND POUNDS STERLINGS) in his account here in London which he deposited as a family valuables.

The family do not know about this deposit.I was on a routine inspection that I discovered a dormant domiciliary account with a BAL. Of (THIRTY SIX MILLION SEVEN HUNDRED AND FIFTY NINE THOUSAND POUNDS STERLINGS).On further discreet investigation, I also discovered that the account holder has passed away (dead) leaving no beneficiary to the account. The bank will approve this money to any foreigner because the former operator of the a/c is a foreigner.I am certainly sure that nobody will come again for the claim of this money. A foreigner can only claim this money with legal claims to the account Holder, therefore I need your co-perationin this transaction.

I will provide all necessary information needed in order to claim this money, Hoping in God that you will never let me down now and in future.o.k! Rafik Bahaa Edine Hariri (November 1, 1944 – February 14, 2005), married to Nazek Audi Hariri,was a Lebanese self-made billionaire and business tycoon, and was five times Prime Minister of Lebanon (1992-1998 and 2000-2004) before his last resignation from office on October 20, 2004.The late Rafik Hariri died on February 14, 2005 when explosives equivalentto around 300 kg of C4 were detonated as his motorcade drove past the Saint George Hotel i n the Lebanese capital, for more information please log on to (www.rhariri.com).

I WANT TO TRANSFER THIS MONEY INTO A SAFE FOREIGN ACCOUNT ABROAD BUT I DON’T KNOW ANY FOREIGNER WHOM I CAN TRUST, I KNOW THAT THIS MESSAGE WILL COME TO YOU AS A SURPRISE AS WE DON’T KNOW OURSELVES BEFORE, BUT BE SURE THAT IT IS REAL AND A GENUINE BUSINESS. I CONTACT YOU BELIEVING THAT YOU WILL NOT LET ME DOWN ONCE THE FUND GOES INTO YOUR ACCOUNT.

Let me hear from you URGENTLY by Email

Best Regards
Mr Kieran S. Dutch

Næst þegar ég fer til útlanda…

Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Útrás fyrir ruglu on janúar 20, 2009 by bylgja

Ég er að fara til Brussel í næstu viku, miðvikudaginn nánar tiltekið.

Er alltaf í vandræðum að ákveða hvaða föt ég á að hafa með mér og þá sérstalega hvaða skó…hve mörg pör…hvaða lit…háa hæla…þægilega…?? En nú er ég búin að leysa það vandamál og hef bara nýjustu skóna með mér (þessa sem ég keypti í Top Shop fyrir útsölu.

Hins vegar hef ég hef aldrei lent í því áður að vita ekki hvaða stól ég á að hafa með mér!!

Hver er ljótust?

Posted in Fyndið on janúar 12, 2009 by bylgja

Á þessari mynd má sjá fólk sem var viðstadd kynningu Heilbrigðisráðherra á Heilsustefnunni í nóvember síðastliðnum. Sjá má á fólkinu á myndinni að það hefur verið drepleiðinlegt á þeirri kynningu.

Getraun janúar er að finna ljótustu manneskjuna á myndinni og nafngreina hana. Mér finnst ein manneskja þarna afgerandi svipljótust…

fra_kynningu_heilsustefnu1

Saying something stupid…

Posted in Fyndið on desember 1, 2008 by bylgja

Rakst á þetta hjá Aðalsteini Facebook vini mínum og hef ekki hætt að hlæja….mér finnst þetta bara svo ferlega fyndið.

Skoðanakönnun

Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Útrás fyrir ruglu on nóvember 12, 2008 by bylgja

Var að kynnast nýjum fítus í Word Press blogginu – skoðankönnunum. Verð að setja eina inn um brennandi málefni á þessari stundu! Á myndinni að neðan má sjá skóeign mína um áramótin síðustu.

Bendi líka á áhugaverða lesningu hér

Náði á toppinn

Posted in Fyndið on nóvember 7, 2008 by bylgja

Loksins tókst mér það sem ég hef stefnt að leynt og ljóst undanfarin misseri! Mér tókst að komast á toppinn hjá Word Press og af öllum snilldarfærslum sem ég hef ritað næ ég á toppinn fyrir ritstuld – að skrifa upp ræðu Geirs H. Haarde frá síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þann 4. nóvember komu yfir 300 manns á síðuna mína og ég náði efsta sætinu yfir Top Posts. Ég verð að eigna Geir blessuðum heiðurinn af þessu og þakka honum fyrir (er það ekki alltaf gert þegar Óskarinn er veittur). Hins vegar verð ég að segja eins og hinar stjörnurnar að það er kalt á toppnum og einmanalegt.

Ég segi bara eins og pabbi þegar Hannes Hólmsteinn var gangrýndur fyrir ritstuld í bók sinni um Halldór Laxnes: “ekki furða að mér þætti bókin hans Hannesar góð, ég var búin að lesa þetta allt áður!”

HA HA HA HA – get ekki að því gert að mér finnst þetta skondið :D

Komandi helgi á hins vegar að fara í það að fylgjast ekki með fréttum heldur í algera hvíld og helst við lestur húsmæðrakláms af verstu sort eftir til dæmis Theresu Charles. Ætla líka að skoða möguleikana á því að skipta um þjóðerni því mig langar ekki vitund að vera Íslendingur lengur.

Bylgja hin dygðuga

Posted in Fyndið on október 10, 2008 by bylgja

Í nærri heilt ár hef ég haft þá hugmynd um sjálfa mig að ég sé dygðug kona. Ég hóf fyrir nokkru að leggja reglulega fyrir. Fjármálaráðgjafi í viðskiptabankanum mínum ráðlagði mér eindregið að fárfesta. Ég gerði það og byrjaði að borga í sjóð 1 og 6 hjá Glitni. Enga stóra upphæð en þó í hverjum mánuði og fyrir vikið leið mér vel því ég var að leggja fyrir og ég var hreinlega stolt af mér. Það hefur alltaf þótt dygð að leggja fyrir. Fyrir það vil ég þakka bankanum mínum, að hafa gefið mér tálsýn um sjálfa mig í heilt ár, þá tálsýn að ég væri dygðug. Kenni engum um hvernig fór og ég tapa væntanlega ekki stórri upphæð og svo sannarlega ásaka ég ekki blessaða konuna í bankanum, hún hefur eflaust ráðlagt mun fleiri en mér sem áttu meira til ráðstofunar. 

Nenni ekki að eyða orðum á fréttir síðustu daga en minni á að orðum fylgir ábyrgð

Sé eitt gott koma úr þessu en það er algert hrun feðraveldisins. Því fagna ég heilshugar

Að gleypa fíl í einum bita

Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Speki ala Bylgja, Útrás fyrir ruglu on september 18, 2008 by bylgja

Í Kastljósinu var haft eftir efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar Tryggva Þór Herbertssyni að það væri engum hollt að gleypa fíl í einum bita…þannig að mér datt í hug að koma þessar uppskrift á framfæri til þjóðarinnar ( þjóðin er að sjálsögðu eins og hún leggur sig hér á síðunni minni).

Mæli með því að þjóðin (eða réttara sagt ríkisstjórnin) fari næst eftir þessari uppskrift sem er ættuð frá Namibíu sem mér finnst bara kostur enda mjög alþjóðavædd – er bæði global og glocal

Namibísk fílakássa

1 meðalstór fíll (loxodontus Africana)
20 pokar af salti
500 kg piparkorn
750 sekkir kartöflur
125 pokar gulrætur
2000 knippi af ferskri steinselju
1 kanína

1. Skerið fílinn í mátulega stóra bita. Tekur u.þ.b. 6 vikur.
2. Skerið grænmetið í bita (tekur aðrar 4 vikur)
3. Setjið kjötið í stóran pott og hellið 5000 og ½ lítra af vatni yfir. Komið upp suðu og sjóðið í 28 daga
4. Skóflið í saltinu og piparnum (gott að nota vélskóflu). Smakkið til
5. Þegar kjötið er orðið meyrt á að bæta í grænmetinu.
6. Sjóðið við vægan hita í eina viku til viðbótar og með steinseljunni rétt áður en kássan er borin fram. Ætti að metta um það bil 3000 manns.
7. Ef von er að fleira fólki er hægt að drýgja kássuna töluvert með því að bæta kanínunni við.

Frétt aldarinnar

Posted in Fyndið on september 17, 2008 by bylgja

HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA

get ekki hætt að hlæja

Ásdís Rán var nokkrum klukkustundum frá því að vera í lífshættu

Þetta er snilld og þá meina ég svo sannarlega ekki veikinda blessaðrar konunnar heldur fréttamatið og umfjöllunina. Hún er örugglega hundveik og hefur liðið illa.

Ísbjarnarblús…Ísbjarnarbúr

Posted in Dægurskvaldur, Fyndið, Hampistlar on júní 4, 2008 by bylgja

Hef til sölu lítið notað búr sem passar vel undir vel svæfðan ísbjörn. Get líka geymt hann í bílskúrnum þar til Greenpeace eða vel meinandi Íslendingar sækja hann og flytja til síns heima í Hvergilandi Disney á Norðurpólnum þar sem hann getur haldið áfram að leika við alla vini sína og vonandi hitt mömmu sína aftur (hún skrapp nefnilega til Hoollywood að leika í Coca Cola auglýsingu)