Bylgja skoðar heiminn
Hér verða settar inn ferðir mínar um veröldina…og nú þegar nær dregur í tíma man ég ekki meira…………í bili
Júní 2007 - Ítalía – Lignano í júní í æfingabúðir í karate
Apríl 2007 – Las Vegas
Nóvember 2006 – Boston
Fullt af öðrum ferðum eins og Grikkland, Danmörk, og fleiri og fleiri (rennur allt í þokumóðu)
September 2000. Ísrael. Ógleymanleg ferð sem hófst við Rauðahafið í Eilat og endaði í Jerúsalem. Sá ótrúlega menningu, sögu og merkilega hluti. Fór úr landi 27. september en daginn eftir skrapp Sharon á Musterishæðina og allt fór í bál og brand aftur.
Október 1998. Skemmtiferð til Amsterdam
Nóvember 1996. Verslunarferð til Dublin
Ágúst 1991. Heimsókn til ættingja og vina í Danmörku og Þýskalandi.
Desember 1988. Skemmtiferð til Amsterdam.
Ágúst 1986. Bílferð um Evrópu í 3 vikur. Svaf í tjaldi á örþunnri dýnu allar nætur nema eina…enda ung. Þýskaland, Sviss, Ítalía (þar var hitinn að drepa mann klukkan 05 á morgnana), Frakkland, Mónakó, Austurríki. Enn er talað um öll skópörin sem ég hafði meðferðis!
6. janúar til 15. janúar 1986. Stúdentsferð til Kanaríeyja með viðkomu í London á bakaleiðinni þar sem kviknaði í hótelinu! Dagarnir á Kanarí fóru í að skoða bari og diskótekin eftir myrkur, Spider var flottast
14. júní til 19. júlí 1980. Heimsókn til Helenu sem þá bjó með fjölskyldu sinni í Norwich Englandi. Fékk ferðina í fermingagjöf fra mömmu og pabba. Ekki sjaldan farið í tívolíið í Great Yarmoth
Ágúst 1977. Ferð með mömmu og pabba til systur mömmu og fjölskyldu í Svíþjóð. Stoppuðum líka í nokkra daga í Kaupmannahöfn.
Jól og áramót 1974-1975. 3 vikna ferð til Kanaríeyja með mömmu og pabba og bræðrum mínum. Skruppum yfir til Afríku í einn dag sem leiddi til heiftarlegrar magasýkingar í familíunni. Hápunktur ferðarinnar var þegar Torfi frændi minn át tvær skálar af Kellogs kryddað með maurum