Ég er búin að kaupa mér þræl

Ég er búin að kaupa mér þræl. Keypti hann í síðustu viku. Á milli okkar var gert samkomulag um að ég ætti hann og réði yfir honum. Hann samþykkti þetta og var mjög sáttur við sín skipti og kjör. Þrællinn minn á að vinna ýmis verk fyrir mig sem mér hugnast sem kannski eru ekki mjög næs en mér er alveg sama, hann samþykkti þetta sjálfviljugur og var bara ánægður með samninginn. Þrællinn minn var blankur fyrir og þarf pening til að sjá sér farboða þannig að ég get ekki séð en að þetta samkomulag henti okkur báðum. Þrællinn er minn og ég á hann og ræð yfir honum. Mér er alveg sama þó þrælahald hafi verið aflagt fyrir einhverjum árum því þrællinn minn vildi þetta alveg sjálfur og auðvitað hefur hver og einn frelsi yfir sér sjálfur.

Skiptið nú út orðinu þræll fyrir vændiskonu. Fáránlegt er það ekki?

Skildu eftir svar