Þetta mál er allt annað en lagt var upp með
“Þetta mál er allt annað en lagt var upp með” er nýjasta mantra Sjálfstæðisflokksins. Mér finnst það segja allt sem segja þarf um stefnu flokksins síðustu 10-12 ára!!!
Þeir (Sjálfstæðismenn) halda því fram að Icesave samningurinn sé annar í dag en hann var þegar skrifað var undir til að halda andlitinu út á við (eða inná við). Einhvern vegin á tengi ég þennan frasa þeirra svo sterkt við Nýju fötin keisarans og fæ mjög svo skýra mynd í hugann. Í þeirri mynd eru tveir síðustu formenn flokksins klæðalausir og núverandi formaður gengur í humátt á eftir þeim og reitir af sér spjarirnar!
Í mínum huga er Sjálfstæðisflokkurinn allt annar flokkur en lagt var upp með þegar hann var stofnaður – hann týndi sjálfum sér og það má kannski segja að Samfylkingin hafi stolið flestum þeim málum frá honum sem hann átti. Einu sinni átti Sjálfstæðisflokkurinn slagorðið Stétt með stétt og margir gátu samsamað sig með helstu stefnumálum flokksins. Einhvers staðar á leiðinni þá enduðu þeir á öðrum stað en lagt var upp með!!
Ég ætla aldrei að gleyma því…