Að svara spurningu með spurningu

Almennt finnst mér það frekar leiðinlegur siður að svara spurningu með spurningu en ég hef tekið upp þann ósið!

Í hvert sinn sem einhver spyr hvort mér finnist þetta og hitt ekki agalegt í þessu samfélagi þá svara ég með spurningunni: Hefur þú einhvern tíman kosið Sjálfstæðisflokkinn?

Þannig þagga ég niður í öllum sem eru að tuða yfir háum vöxtum, genginu, skuldunum, Icesave, efnahagsmálum, skuldastöðu heimilanna, þjóðflutningum, fátækt í samfélaginu, niðurskurði, vanmætti ríkisstjórnarinnar, osfrv.

Svo vil ég líka benda að ef við viljum að einhver biðjist afsökunar á gerðum sínum þá verðum við jafnframt að vera tilbúin að fyrirgefa viðkomandi. Það er nefnilega miklu erfiðara…

2 svör to “Að svara spurningu með spurningu”

  1. Ég get gefið þér heiðarlegt svar við spurningunni: NEI
    En………ég hef kosið Framsókn………og skammast mín hroðalega. Ég hélt að þetta væri svona samvinnuhugsjón og eitthvað svoleiðis………..en það er mjöööööööög langt síðan.
    Að fyrirgefa þessum hroðum……..tæplega í mínum huga……ekki enn.

  2. hahahahahahahaha
    Þegar fólk hefur svarað neitandi hefur næsta spurning einmitt verið: “en hefurðu einhvern tíman kosið Framsóknarflokkinn?”

Skildu eftir svar