Fyrirgef oss vorar skuldir
Það er greinilegt að Breta og Hollendingar ætla ekki að fyrirgefa okkur vorar skuldir. Þá spyr ég því ættu þeir að gera það? Þær skuldir sem stofnað er til í íslensku nafni eru íslenskar skuldir. Ef hér hefði verið útlenskur banki þá hefði nú eitthvað í okkur heyrst ef þeir hefðu ekki ætlað að standa við sínar skuldbindingar við gjaldþrot eða hrun. Vissulega var ekki til þessa skulda stofnað af okkur Íslendingum en við kusum þó yfir okkur þau stjórnvöld sem einkavæddu bankanna. Sömu stjórnvöld sem héldu að sér höndum þrátt fyrir viðvaranir. Það er ekki eins og það sé eitthvað nýtt í þessu og ekki legið fyrir síðan í haust að við værum í vondum málum. Hélt í alvörunni einhver að við þyrftum ekki að borga? Að við Íslendingar værum enn og aftur yfir aðra hafin? Að við værum svo spes að um okkur giltu aðrar reglur. Life is a bitch og við smáþjóð utan ESB. Eflaust er það rétt að regluverk Evrópu var ekki í lagi og spurning um margt í þessum málum. Og svo sannarlega er ég ekki sátt við að þurfa hugsanlega að borga þessar háu upphæðir og en er þó fegin að málið er frágengið.
Mér er algerlega á huldu hverju fólkið var að mótmæla í gær á Austurvelli. Held að það hafi fyrst og fremst verið svekkelsi með Steingrím Joð sem eins og svo margir átti auðvelt með að gagnrýna þegar hann var í stjórnarandstöðu og vissi ekki eins mikið og hann veit núna. Vona bara að allt komi upp á yfirborðið þegar tíminn líður og yfir þessi mál fennir.
Mér finnst þetta leiða enn og aftur í ljós hvað Íslendingar eru barnalegir upp til hópa. Höfum í huga að ófæddir kynslóðir Þjóðverja þurftu að borga fyrir syndir nasista árum saman.
Langar að endingu að benda á pistil Silju Ómars
Er í nýju rauðu skónum mínum
júní 10, 2009 kl. 12:04 am
Jamm, og svo má bæta eftirfarandi bæn við:
Góði Guð
Fyrirgefðu vorar icesave skuldir
Gefðu að það sé komið árið 2007
og til viðbótar að einkaskuldir okkar verði niðurfelldar
Við ætluðum aldrei að skulda svona mikið
okkur þykir svo ofboðslega leitt að borga
Þinn Sigmundur Davíð