Í dag
…er ég stödd í sumarbústaðnum Sólbergi í Úthlíð í sól og sumarblíðu. Á svoleiðis degi eyðir maður ekki orku í að skrifa um IceSave samninginn!! Ég veit bara eitt að ég skil ekki hvað þetta lið er að pípa á þingi og fær einskonar brjóstagjafaþoku þegar formaður Framsóknar hefur róminn. Þó hef ég ekki haft barn á brjósti í mörg ár. Svipað gerist þegar BB byrjar að kvarta yfir því að fá að tala um málin…