hvar eru allir?
Ég taldi víst þegar ég byrjaði að skrifa aftur að það yrði brjáluð traffík hér á síðuna mína…hvar eru allir?
Það að einbeita sér að bloggskrifum aftur er svolítið eins og að læra að hjóla. Fer hægt fyrst en svo kemur þetta. Því hef ég ákveðið að skrifa eina færslu á dag svona til að æfa mig. Þá hefur maður líka augun opin eftir áhugaverðu umfjöllunarefni. Það er hverjum manni hollt.
Þið verðið bara að þola ómerkilegar færslur þess á milli sem ég dett á eitthvað sniðugt. Takmarkið er sem áður að verða efst á lista www.wordpress.com yfir vinsælustu bloggara landsins.
Stýrivextir voru lækkaðir um 1% í morgun – óhboj – allt verður vitlaust núna. Er búið að ráða Davíð aftur í Seðlabankann eða hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn okkur í skrúfstykki?
Er í svörtum sandölum með frjálsar tær
júní 5, 2009 kl. 8:35 am
hæ
Ég er hérna, þökk sé google reader. les þig reglulega………..ef þú skrifar!