Hin merkilegu læknisstörf!

Í dag fór ég með son minn til læknis, á heilsugæsluna í Garðabæ. Við biðum í rúma viku eftir tíma enda eru heimilislæknar uppteknar manneskjur. Okkar erindi var ekki akút heldur er drengurinn með vörtu á annarri stóru tánni. Ég velti því fyrir mér þar sem Óskar lá á bekknum og læknirinn sprautaði fljótandi köfnunarefni á illgresið hvort að manneskja með tæplega 10 ára nám á háskólastigi væri ekki over-qualified í þetta verk? Af hverju þarf læknir að sjá um slíka aðgerð??? Þessi litla “aðgerð” krafðist ekki neinnar sérstakrar þjálfunar, ekki var skorið bara spreyjað og kannski mikilvægast að vera ekki skjálfhentur!

Ég bara fór að velta þessu fyrir mér – svona í ljósi umræðu um biðlista og kostnað við heilbrigðiskerfið

Er í svörtu lakkskónum mínum með lágum hæl (keyptir í Boston í september 2008)

Skildu eftir svar