Dauð, dauðari dauðust?
Þannig er að í mér blundar bloggari sem af og til kemur fram. Hann hefur týndur og tröllum gefinn síðustu misserin. Þessi bloggari er orðinn svo mikill Facebookari að hann hugsar bara í frösum og ræður ekki lengur við að mynda flóknari setningar en þær sem eru 2 sekúndur að verða til. Þessi bloggari er meira að segja búinn að tapa niður lágmarkskunnáttu í íslensku og man ekki lengur hvort skrifað er í eða ý í orðinu TÝNDUR…
Iss – gengur ekki
Samt hefur heilmikið á daga þessa bloggara drifið. Hann varð til dæmis 43 ára síðasta laugardag (30. maí), hann er orðinn 1. kyu í karate og má því hefja undirbúning að DAN gráðun á næsta ári. Þessi bloggari er búinn að ferma yngsta barnið sitt og skipuleggja sumarleyfi til Tenerife í miðri kreppu. Kaupa sér reiðhjól og hjóla um bæinn eins og hann getur, vinna helling (með hangandi hendi), skipuleggja ættarmót í sumar, drekka mikið kaffi, fara á Listahátíð (Tiger Lillies og Þorstein frá Hamri), sinna fjölskyldunni, strauja (bara smá), fara í sumarbústaðinn og svona mætti lengi telja.
Margt hefur hann ekki gert – eins og að vera handtekinn fyrir óskpektir á almannafæri eða mótmæli.
Verst af öllu er að þessi aumi bloggari hefur bara keypt sér eitt skópar á árinu og er það langt undir meðaltalinu. Það er ekki nógu gott!!
Lifið heil