Ég hef ákveðið

að fylgjast sem minnst með pólitíkinni fram að kosningum. Er búin að fá nóg af þessu. Veit hvað ég ætla að kjósa og mun gera það. Hlusta ekki á gylliboð, skítkast, hræðsluáróður né væl.

Geri mér fullkomlega grein fyrir að við erum í djúpum skít og niðurskurður verður mikill á næstu fjárlögum, sama hvaða flokkur er í ríkisstjórn. Veit líka vel að skattahækkanir verða á meðal JónogGunnu og alla hina því að flestir tekjustofnar ríkisins eru horfnir á haf út. Veit líka að krónan er illa stödd og við þurfum að ættleiða annan gjaldmiðil. Veit líka að sveitarfélögin þurfa að skera niður þjónustu. Langar að benda hér á eina grein sem kannski snertir þetta og aðra hér sem er eftir Benedikt Jóhannesson.

Við kjósendur leyfum flokkunum að ljúga að okkur. Höfum í kosningabaráttunni stungið hausnum í sandinn og látið ljúga að okkur um að þetta sé nú ekki svo slæmt og það þurfi bara svo sem eitt álver eða skatta á “ofurlaun” til að redda málum.

Bottom line: VIÐ MUNUM BORGA BRÚSANN hvort sem það verður með óbeinum sköttu, beinum sköttum, þjónustugjöldum eða á einhvern annan hátt.

Skildu eftir svar