Vélin er að hitna

Jæja þá er kominn dagur 2 í bloggátakinu.

Það er svo skrýtið að maður dettur alveg úr æfingu þegar maður hættir að skrifa oft og örugglega eins og ég gerði. Hef í sjálfu sér ekki neitt að segja sem slíkt og ætla því að skrifa hefðbundna færslu um daglegt líf.

  • Fermdi soninn, Óskar Daða á Pálmasunndag
  • Keppti á Íslandsmeistaramótinu í kata 28. mars
  • Fór til Brussel 25.-27. mars á vegum vinnunnar
  • Er í vinnunni akkúrat núna
  • Man ekki neitt meira
  • Dettur ekki einu sinni neitt fyndið í hug
  • Reyndar held ég að ég sé að verða lasin
  • Er með höfuðverk
  • Hnerra mikið
  • Sonur minn er nefnilega veikur

Er í sömu skóm og í gær

Skildu eftir svar