Xavíð

Ég er komin með ógeð á Davíð…öllum Davíðum og get ekki sagt þetta nafn lengur. Þjóðfélagið og er orðið of upptekið að Davíð Oddssyni og hans verkum.

Fjölmiðlar elta kallinn um bæinn…fáránlegt. Held við ættum að fara að einbeita okkur að öðrum og þarfari málum. Held að þöggun fari best hér. Í þessum rituðu orðum er Óli Palli á Rás2 með einhverja mótmælendur í beinni og segir frá seið sem var magnaður á kallinn. Plís hlífið mér við þessu…! Eyðleggur málstaðinn og er vatn á myllu Íhaldsins!

Davíð hættir þegar ný lög verða samþykkt og málið er dautt. Finnst Jóhanna Sigurðardóttir taka rétt á þessu, með því að leiða hann hjá sér.

Mér finnst mun merkilegra að ákvæði neyðarlaganna gangi gegn Stjórnarskránni en það hefur algerlega tapast í þessar umræðu.

Þetta sýnir vel hvað fjölmiðlar stýra allri umræðu. Enginn á mínum vinnustað nennir að elta ólar við þetta rugl með Davíð.

Ein ummæli to “Xavíð”

  1. Svooooo sammála þér! Tvennt ólíkt að hafa skoðanir á hlutunum og ræða þær eða fá svona maníu fyrir einhverju einu eins og þverhausnum Davíð. Nóg annað sem þarf að taka á hér á landi þó tímanum sé ekki eytt öllum í hann.

Skildu eftir svar