Bylgja hin lata

Gleðileg jól

Gleðilegt ár

Takk fyrir allt gamalt og gott

Ég þjáist af gífurlegri bloggleti og er eiginlega orðlaus en hugsa margt ekki síst um stjórnmál, efnahagsmál og heimspekilega hluti (nei djók).

Er orðinn alger aurpúki (keypti mér samt skó fyrir útsölurnar). Ég borgaði upp yfirdráttinn minn í bankanum rétt áður en stýrivextirnir hækkuðu og sagði upp greiðsluþjónustunni sem ég var að borga 12 þúsund krónur á ári fyrir að borga mína eigin reikninga auk yfirdráttarvaxta!! Þvílíkt rip-off.

Legg nú fyrir á bankabók en ekki verðbréfasjóð. Er líka búin að færa séreingarlífeyrissjóðinn minn á lífeyrissparnaðarreikning í banka.

Er líka orðinn fitubolla og bætt á mig ca 4 kg í haust af fitu. Stefni að ná fitunni af mér með hækkandi sól með því að mæta vel á æfingar.

Stefni líka að því að borða meira af trefjum og mæta oftar með nesti í vinnuna.

Er orðinn 2. kyu í karate en ég fór í gráðun í desember.

2 svör to “Bylgja hin lata”

  1. Gastu náð út séreignasparnaðinum þínum??? Ég hélt það væri ekki hægt.
    Innilega til hamingju með jólin og nýja árið. Líka til hamingju með skynsemina á fjárhagslega sviðinu. Mest af öllu óska ég þér til hamingju með nýju karate gráðuna þína.

  2. Ég var með séreignina hjá Almenna lífeyrissjóðnum og gat tekið hana út en að sjálfsögðu tók ég á mig áfall!
    Takk fyrir – er rosalega ánægð með að vera orðin 2. kyu. Stefni á 1. kyu í vor :)

Skildu eftir svar