Sonur minn, snillingurinn

Hef síðustu vikur og mánuði verið óheyrilega löt við að skrifa en ætla nú að herða mig í skrifunum. Er líka búin að ákveða að skrifa sem minnst um efnahagamál því það er til að æra óstöðugan að pirra sig á því. Hins vegar ætla ég að segja að ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur, skammast mín fyrir óstjórnina og ráðleysið og það bananalýðveldi sem ég bý í. Held að þetta muni hafa gífurleg áhrif á sjálfsmynd okkar sem þjóðar.

Hins vegar fylgist ég vel með og furða mig á mörgu og held að vandamál okkar Íslendinga kristallist vel í því að feður eiga að rannsaka syni sína og engan hægt að finna sem er ekki tengdur klíkunni!!

Þetta er allt tengt þvers og kruss, sama fólk í stjórnum stofnana og fyrirtækja og alger samtrygging skulda, eigna og sömu nöfnin poppa upp aftur og aftur. Afdankaðir og úr sér gengnir stjórnmálamenn og oft harðfullorðnir fólk sem situr í stjórnum bankanna. Jafnvel formenn stéttarfélaga sitja í stjórn banka sem fultrúar síns lífeyrissjóðs. Auðvitað er eðlilegt að stór hluthafi hafi eitthvað með stjórn banka sem hann á í að segja en formaður verkalýðsfélagsins á ekki að fara í öll djobbin.

Stjórn FME er til dæmis svona skipuð samkvæmt þeirra eigin vefsíðu:

Jón Sigurðsson, hagfræðingur, formaður, (situr jafnframt í stjórn Seðlabankans)
Sigríður Thorlacius, lögfræðingur, varaformaður,
Ingimundur Friðriksson, bankastjóri Seðlabanka Íslands.

Varamenn:
Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, (sem jafnframt er einn stærsti hluthafinn í Landsbankanum, hefur setið í stjórn og skv ársskýrslu bankans formaður endurskoðunarnefnd bankans)
Þuríður Jónsdóttir, héraðsdómslögmaður,
Sigríður Logadóttir, aðallögfræðingur Seðlabanka Íslands

Þetta er bara ekki í lagi og ég ætla rétt að vona að við stokkum upp þetta kerfi og endurskoðun þessa samtryggingu. Held að bankarnir ættu að leggja minna í lúkkið á ársskýrslunum og meira í innihaldið.

Þar sem þetta er er orðin löng færsla um það sem ég ætlaði mér ekki að skrifa verður sagan af syni mínum að bíða betri tíma.

Er í svörtum öklastígvélum með smá hæl

Skildu eftir svar