Er á lífi….frekar löt
Ákvað að henda hér inn einn stuttri færslu um sem minnst og reyna að skrifa um það af minni alkunnu snilld.
Ég er sem sé komin heim frá Noregi og fer næst til útlanda eftir nákvæmlega 2 mánuði þegar saumklúbburinn minn fer til Boston – mikið hlakka ég til
Noregur var snilld og að venju kom ég heim með marbletti víðast hvar (sérstaklega voru hægri kálfur og vinstri olnbogi ljótir ). Þeir sem vilja sjá karatemarbletti geta farið hingað. Þeir eru einhvern vegin allir eins og svo sannarlega var ég ekki sú eina með marbletti eftir ferðina.
Ekki tók ég margar myndir en þó eina…af Eiríki Haukssyni (rétt misstum af tónleikum með honum)
Eins og ég sagði var ferðin hrein snilld og við vorum í gamla bænum í þvílíkri kyrrð og ró að ferðin var í raun yndisleg hvíld og slökun þó æfingar væru strembnar oft á tíðum. Á þessum 4 dögum æfðum við karate í fjórtán og hálfa klukkustund alls og myndi ég segja að síðasti dagurinn hafi verið toppurinn. Fyrst svaka æfing hjá Kompier (minnti mig á BootCamp æfingu hjá Bigga) og svo áfram keyrsla hjá hinum frábæra Amos og enduðum æfingabúðirnar á góðri jógaslökun.
Á laugardeginum var svartbeltisgráðun og voru það 2 ungar stúlkur frá Akranesi sem gráðuðust í shodan með mikilli prýði en það náðu ekki nærri allir hjá honum Amos. Það voru stoltir Íslendingar í íþróttahúsinu þann dag
Allir kennarararnir voru hreint út sagt frábærir og ég geri ekki upp á milli þeirra og ég stefni að því að fara aftur að ári. Síðan var félagsskapurinn aldeilis skemmtilegur og BYLGJA afrekaði það að syngja í fyrsta sinn opinberlega (Sing Star) með Siggu Maju og allt var fest á filmu af henni Maríu…þetta var sannkölluð berskjöldun fyrir feimna söngkonu :D
Þegar heim var komið þurfti aldeilis að þvo karategalla og annan þvott (held ég hafði einkaleyfi á þvottavélina á heimilinu). Kettinum fannst lyktin úr “óhreina þvotts hólfinu” á töskunni minni afskaplega áhugaverð en hún sækir í allt sem angar af átökum og líkamlegu erfiði ;) enda skepna. Henni finnst líka voða gott að þefa af skóm og liggur gjarnan í þvottakörfunni.
Síðustu viku hef dvalið í Skyggnisskógi í þvílíkri hitamollu uppá hvern einasta dag. Þar afrekaði ég að umbreyta venjulegum buxum (Keyptar í skemmtilegustu búðinni í Las Vegas) í Diesel buxur en svoleiðis buxur hef ég aldrei átt. Mér tókst sem sé að hella yfir mig nokkrum lítrum af díselolíu og hér eftir verða þær aldrei annað en Diesel buxurnar mínar!
Læt myndir fylgja úr þessari paradís sem ég tók á símann minn.



