NEI NEI hef enga bólu…………………
datt þetta bara í hug þar sem ég ligg í rúminu og horfi á leikarana mæla á frönsku í Greys Anatomy. Það eru allir svo einstaklega eymdarlegir í þættinum (ekki síst starfsfólkið) og ef maður fer að ráða í hátterni og svipbrigði sér maður greinilega að einn er illa haldinn af eyrnaverk, annar er með bólu á rassinum sem orsakar undarleg flogaköst og sá þriðji alvarlegt ilsig. Hef aldrei horft á þennan þátt áður og var ekki lengi að ná söguþræðinum
Jæja ég er sem sé komin til Brussel og ligg hér í bælinu á hótel Silkien. Á morgun eftir hádegi hefjast fundir vegna Evrópsku stefnuskrárinnar um heilbrigði hjartans sem standa yfir til miðvikudags. Ferðin út gekk ágætlega (eða þannig). Ég misst af fluginu hingað til Brussel því það var mikil seinkun á Kaupmannahafnarfluginu í morgun. Lentum á Kastrup 15:15 en flugið hingað var 15:10! Var ekki alveg að gera sig. Veit ekki alveg hvað þetta er með mig og fllug tengt Kastrup
Fyrir vikið þurfti ég að hanga á Kastrup en því miður sá ég enga flotta skó né leðurbuxur eins og þegar ég kom hingað seinast. BÖMMER!!!!
Fékk mér smá göngu áðanog er hótelið staðsett alveg við hliðina á höfuðstöðvum Evrópusambandsins. Tókst líka að ramba á íslenska sendiráðið og tillti mér svo niður á enskan pöbb þar sem góð stemning var og menn horfðu á leik Þjóðverja og Austurríkis. Settist þar niður og fékk mér einn léttan belgískan og horfði á restina af leiknum. Annars eru það Hollendingar sem eiga hug minn allan og mér finnst þeir alltaf lang flottastir. Hef haldið með þeim lengi en hef ekki hugmynd um af hverju. Hins vegar skal ég alveg viðurkenna það að Tyrkland hefur náð mér líka…held það hafi gerst þegar markvörður þeirra gekk af velli eftir rauða spjaldið……………………GOD sá var fullkominn, minnti á grískan guð þó hann væri Tyrki ;-)
Er orðin þreytt og ætla að slökkva á frönskunni í sjónvarpinu, enda alveg hætt að skilja neitt í henni lengur því Greys Anatomy er búið og nú eru belgískir unglingar að spjalla i málefnanlegaum þætti um málefnaleg málenfi og ég skil aldrei neitt málefnalegt þannig að ég er best geymd sofandi.
Over and out…!
PS. finnst það fyndið að í Brussel skuli ekki vera nein NON smoking regla á veitingastöðum (það virðist allavega reykt á öllum veitingastöðum). Af öllum stöðum hefði ég haldið að hér í miðstöð regluverkis Evrópu væri bannað að reykja á opinberum stöum
Annars sammála þér um Hollendingana.. vona að þeir vinni
Hef ekki horft á sápur í mörg ár og það hefur eflaust bætt geðheilsu mína
Er nokkuð hneykslaður yfir því að höfuðborg regluveldisins leyfir reykingar á veitingastöðum (sem gamall reykingamaður), en ég er að sjálfsögðu fylgjandi alheimsbanni gegn reykingum!
Spurðist fyrir og komst að því að það er bannað að reykja á þeim stöðum sem selja mat.
Mikið var nú gott að komast heim til sín aftur. Mun gera stuttan stans því það er Noregur í næstu viku….
Þú ert greinilega ekkert mikið í að vera heima hjá þér þessa dagana. Annars ertu greinilega í því að skrifa fína pistla þessa dagana. Greinilega ekki alslæmt að vera í útlandinu.