Ísbjarnarblús…Ísbjarnarbúr
Hef til sölu lítið notað búr sem passar vel undir vel svæfðan ísbjörn. Get líka geymt hann í bílskúrnum þar til Greenpeace eða vel meinandi Íslendingar sækja hann og flytja til síns heima í Hvergilandi Disney á Norðurpólnum þar sem hann getur haldið áfram að leika við alla vini sína og vonandi hitt mömmu sína aftur (hún skrapp nefnilega til Hoollywood að leika í Coca Cola auglýsingu)

júní 4, 2008 kl. 10:28 pm
Góð, þessi ísbjarnarblús var annars óborganlega vitlaus. Læt vera þó einhverjum hefði tekist að svæfa bangsa, átti hann svo bara að vera lúllandi meðan viðeigandi búr væri smíðað? En nú ert þú með lausnina, búrið var bara til hjá þér!
Þetta var bara fyndið.
júní 4, 2008 kl. 11:58 pm
tjehjehehehe….. nebblea!! Svæfa Bjössa og hvað svo???? Veit ekki hvað hann hefði unað sér vel í bílskúr í Garðabænum til lengdar.
september 27, 2009 kl. 1:16 pm
[...] Bangsinn sem kom hér um daginn olli miklu fjaðrafoki eins og frægt er orðið og margir beturvitrungar vissu sko alveg hvernig átti að lúlla svona dýri í svefn. Svo átti bara að fá einhverja vélsmiðjuna til að útbúa gám og húrra bangsa svo úr landi, hvert var aukaatriði. Fæstir hugsuðu málið til enda. Besta innleggið átti samt Bylgja vinkona mín og ég leyfi mér að benda á það hér. [...]