Einhverra hluta vegna kom þessi laglína mér í hug í morgun þegar ég vaknaði. Svo sannarlega er mér ekki grátur í huga heldur bara bullandi gleði og ánægja á þessum fallega degi.
Búin að fá fullt af kossum og kveðjum á msn, töluvpósti, sms og á Facebook og vil þakka öllum kærlega fyrir. Fékk líka óvænt matarboð í hádeginu sem var verulega ljúft.
Ég verð á Tapas banum klukkan 20:00 með Guðrúnu Lilju og Sirrýju og eru allir velkomnir sem hafa ómótstæðilega löngun til að hitta mig. Hins vegar eru blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
En þar sem ég er ekki eina afmælisbarnið langar mig að biðja ykkur að hugsa til Dagnýjar minnar og Elínar vinkonu og svo hennar Anushu fósturdóttur minanr á Indlandi. Hún er 12 ára í dag. Svo ekki sé minnst á Hafnarfjarðabæ ;D
Fékk þessa líka flottu afmælisgjöf í morgun, Garmin Forerunner 405

Til hamingju með afmælið elsku vinkona mín. Mikið hefði nú verið gaman að geta komist á tapasbarinn!!!
Þú búinn að fá garmin og ég wayfinder í símann. Nú villumst við ábyggilega ekki af leið næst þegar við erum í Þórsmörk!
Til hamingju með afmælið!
Innilega til hamingju með afmælið! Rosa flott afmælisgjöf.
Takk fyrir elskurnar. Afmælisgjöfin er svo flókin að ég held að ég þurfi að fara á námskeið til að kveikja á græunni.