Í gær fór ég til augnlæknis sem er í sjálfu sér ekki merkilegt. Umræddur augnlæknir heitir Vésteinn og er með stofu á Heilsugæslu Kópavogs í Hamraborginni. Kosturinn við Véstein er að það er stutt bið eftir tíma hjá honum.
Alltaf þegar ég hitti Véstein kemur í huga mér góð saga að samskiptum hans og vinkonu minnar sem er frekar fljótfær kona. Fyrir nokkrum árum var hún komin á allra allra síðasta dag með að byrja á nýjum pilluskammti en hafði trassað að fá nýjan lyfseðil. Í angist sinni yfir mögulegri þungun tekur hún símaskrána og leitar að lækni á Heilsugæslunni í Kópavogi sem hefur símatíma þennan dag og helst á stundinni. Finnur einn með símatíma og slær á þráðinn. Kynnir sig og segir farir sínar ekki sléttar, heimilislæknirinn hennar ekki með símatíma og hún bara verði að fá pilluna í dag því hún geti ekki hugsað sér að eiga fleiri börn, allavega strax. Geturðu reddað mér þó þú sért ekki minn heimilislæknir? Já segir læknirinn….ég get nú örugglega reddað þér í þetta sinn þó ég sé bara augnlæknir með stofu hérna á heilsugæslunni. Hún hafði sem sé hringt í hann Véstein.
Ég kann fleiri sögur af henni vinkonu minni. Hún fór til að mynda fyrir mörgum árum á slysavarðstofuna þar sem voru saumuð 3 spor í nefið á henni (annan nasavænginn). Hvað kom eiginlega fyrir spurði læknirinn, hvernig fórstu að því að skera þig í nefið? Ég var nú bara að sneiða agúrku svaraði hún að bragði. Hún er eina manneskjan sem ég hef heyrt af sem hefur saxað af nefinu á sér við það að skera agúrku.
Besta sagan af henni er þegar hún mætti manninum sem var að koma úr Hagkaup þegar hún er að fara inn. Maðurinn haltrar og þessi elska segir: Jeminn eini hvað er að sjá, ertu með svona mikið hælsæri? Nei svaraði maðurinn, ég er bara spastískur.
Það er bara ein Sirrý og þessi elska ætlar með mét út að borða á morgun á Tapas barinn
mmmmmmmmmmmmmm Lambakjöt í lakkrís mmmmmmmmmmmmmmm
mmmmmmmmmmmmmm Here I come mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Við Sirrý á góðri stundu á afmælinu mínu

hahaha
Hún hringir kannski næst í tannlæknirinn.
En eins og sagt er í útlandinu: trevlig fortsättning……….
Hehehe….Það er nú ein vinkona mín úr Garðabænum sem ég skal hafa ónefnda, sem skar af sér nasavænginn þegar hún var að skera appelsínu! Hún lenti uppá slysó eins og vinkona þín og fékk nokkur spor.
Annars bara góðar pælingar hjá þér og skemmtilega skrifað.
Kveðja úr sólinni,
Heba