Long time no seen – eldhúsmellan is stepping out

LOKSINS er hún komin í mig konan sem í mér býr (leigir mjög ódýrt) og stýrir kvenlegu dygðunum. Hún er eiginlega óttaleg eldhúsmella ;) og verið í verkfalli lengi. Að vísu sauð ég (ekki hún) 6 sviðahausa á sunnudaginn en það telst ekki kvenleg dygð.

Eldhúsmellan tók síðan öll völd í fyrrakvöld og lét mig grúska í matreiðslubókum og stúdera kökuuppskriftir. Hins vegar er möguleiki að þetta sé einn birtingarmáti anorexíunnar sem ég hef ekki en kannski þessi leigjandi minn sem er vel að sér í kvenlegum dygðum en samt eldhúsmella.

Svo í gær hófst ég handa og bakaði marenge botna eftir vinnu og slumpaði í eitt stykki ostaköku. Þar sem ég er svo vel að mér í hinu kvenlega var ég búin að taka eggin úr kæli um morguninn en ég lærði það af henni móður minni að eggjahvítur þeytast betur ef þær eru við stofuhita. Þetta er eitt af grundvallaratriðum í bakstri!

Botnarnir verða notaðir í Rommkúlutertu sem verður boðið uppá í tíukaffinu á kaffistofu Hjartaverndar 3ju hæð á föstudaginn og ostakakökuna ætla ég að eiga um helgina.

Gæti verið að ég eigi afmæli bráðum ;)

Skildu eftir svar