9 ára bekkur í Flataskóla

Var að gramsa í gömlu dóti um helgina og rakst á þessa bekkjarmynd af 4.-G.M. Ég fylgdi flestum bekkjarfélögum mínur alla skólagöngunni í Flataskóla og sumum í Garðaskóla og nokkrum alla leið í stúdentspróf frá Fjölbraut í Garðabæ (held við séum 3 á myndinni samstúdentar).

Föngulegur hópur sem hefur að ég held bara farnast vel.

Kennarinn okkar hét Guðrún Magnúsdóttir og mig minnir að hún hafi verið frekar ströng.

7 Responses to “9 ára bekkur í Flataskóla”


  1. 1 Ásgeir maí 25, 2008 klukkan 4:46 pm

    Guðrún er í minningunni einn ljúfasti kennari sem ég hef haft og ég upplifði hana ekki sem stranga. Hefðum haft gott af því að halda henni upp allan barnaskólann og þá sloppið við skoffínið sem tók við okkur í 12 ára bekk.

    Annars föngulegur hópur sem gaman væri að hitta aftur á einhverskonar reunioni.

    Einu nafnið sem ég man ekki á myndinni er sú þriðja frá hægri í fremstu röð, en hún átti heima á Lindarflöt 8 (minnir mig)

  2. 2 bylgja maí 26, 2008 klukkan 1:11 pm

    Skoffínið úr 12 ára bekk sem hét Jóhann hrakti okkur Jónu úr bekknum og eyðilagði hinn góða anda sem ríkti meðal okkar! Óþolandi kvikindi sem spilaði með bekkinn og sérstaklega strákana. Gleymi aldrei hvað mér var misboðið þegar hann leyfði að hengdar yrðu upp myndir af alsnöktum konum í fegurðarsamkeppni í nafni jafnréttis!
    Lausnin var að færa okkur Jónu og láta hann klára veturinn. Hins vegar held ég að kvikindið hafi aldrei kennt eftir þennan vetur.
    Sú sem er þriðja frá hægri er hún Hildur og var oft kölluð Bamba.

  3. 3 bylgja maí 26, 2008 klukkan 1:14 pm

    Gleymdi einu…þú ert nú algert krútt á þessari mynd og ekki furða að þér gengi vel að kyssa stelpurnar :D

  4. 4 Ásgeir maí 26, 2008 klukkan 5:12 pm

    Klámmyndirnar á veggnum var nú nokkuð fyndið moment. Hann leyfði okkur strákunum að hengja upp myndirnar og fimm mínútum síðar (til að gera langa sögu stutta) birtist Hallgrímur aðstoðarskólastjóri og kallaði hann á fund.
    Þegar Jóhann kom af fundinum var hann alveg brjálaður og rak okkur til að taka niður myndirnar. Í staðinn fékk hann 46 teiknibólur á stólinn sinn og rak okkur öll heim eftir að hafa hlammað sér ofan á þær :)
    Ég man enn eftir svitalyktinni af honum og hversu andfúll hann var.
    Annars var þetta fínn bekkur fram að 12 ára bekknum. Þá fór allt í hnút og árið eftir var okkur skipt í tvo bekki. Skiptingin var svo vel unnin að tvíburarnir fengu ekki einu sinni að vera í sama bekk.

    Við erum nú öll ansi krúttuleg á myndinni og þú hefur nú ekki breyst mikið :)

  5. 5 Björg maí 26, 2008 klukkan 10:59 pm

    Ég man ekki eftir þessum kennurum,a enda var ég heppin og með sama kennarann í 10, 11 og 12 ára bekk. Sem þykir víst gott, sérstaklega núorðið.

    Hvað heitir aftur skólastjórinn? Man að hann samdi einhverjar barnabækur.

    Ekkert vandamál að þekkja Bylgju á myndinni – hún hefur ekkert breyst!

  6. 6 Ásgeir maí 27, 2008 klukkan 4:00 am

    Vilbergur hét skólastjórinn, en það var bróðir hans, Stefán Júlíusson sem samdi nokkrar barnabækur.

  7. 7 bylgja maí 27, 2008 klukkan 9:00 am

    hmmmmmmmmmmm ég hef víst breyst ER EINS OG STRÁKUR!!! Mamma saumaði grænu buxurnar og ég man hvað þær stungu.
    Bekknum var sundrað eins og öllum í Garðaskóla og það gerði tvíburunum bara gott.
    Hins vegar yfirgáfum við Jóna bekkinn á miðjum vetri og fórum til hennar Matthildar og þvílíkar viðtökur þar. Bekkurinn byrjaði á að fara í mótmælagöngu um skólalóðina í fyrstu frímínútum og neitaði að hafa okkur Jónu í bekknum. Get hlegið að þessu í dag en það var ansi erfitt þá. En við Jóna vorum harðir naglar og stóðum saman. Í dag er einn aðalforsprakki göngunnar ein mín besta vinkona.
    Sagði það þá og segi það enn Jóhann Þórhallsson var fífl sem átti aldrei að fá kennarapróf og ég vona svo innilega að hann sé ekki að kenna!


Skildu eftir svar




Fjöldi rugluhausa

  • 28,072 hits

Úr handraðanum