…en ég elska Eurovision og er komin með hnút í magann af spenningi. Mér er alveg sama hver vinnur eða hvort við förum áfram. Það er eitthvað svo skemmtilegt við Eurovision þannig að maður verður bara kátur og hýr
…heimsins heimskasti bloggari
…en ég elska Eurovision og er komin með hnút í magann af spenningi. Mér er alveg sama hver vinnur eða hvort við förum áfram. Það er eitthvað svo skemmtilegt við Eurovision þannig að maður verður bara kátur og hýr
Ég er svo sammála – en það væri nú skemmtilegra ef við kæmust nú upp úr forkeppninni, bara svona fyrir stemminguna í aðalveislunni á laugardeginum…
Ég er hýr og ég er rjóð!
Hvernig hafa gönguskórnir þínir það?
Gönguskórnir hafa það of gott!!!
Ætla druslast í þeim í Guðmundarlund á sunnudaginn og ætlaði einmitt að slá á þráðinn og fá uppskrift að einum góðum ratleik
Verður örugglega heilmikið spennandi að fylgjast með keppninni. Heyrði í útvarpinu í morgun að senugólfið væri svo flughált að keppendur sem verða í háhæla skóm eru logandi hræddir. Sú norska segist varla þora að taka dansspor af ótta við að enda á óæðri endanum. Svo… já, getur orðið verulega spennandi að fylgjast með!
Ja nema allir verði þá komnir í trampara…
“Það er eitthvað svo skemmtilegt við Eurovision þannig að maður verður bara kátur og hýr
”
Er það ekki bara áfengið sem er að veldur þessu ástandi ?? :O
Júróvisjón veldur svona öryggistilfinningu eins og allt sem er ekki hverfult: jólin, páskarnir, afmælið mitt og júróvisjón. En ég er raunar orðin leið á þessu öllu fernu – allt of mikil endurtekning fyrir minn smekk. Ég missi sem betur fer af júróvisjón þetta árið í útlöndum. Mér skilst að Spánverjar ignoreri keppnina algjörlega því þeir hafa ekki unnið í 39 ár
Kannski ég sleppi júróvision þetta árið og hengi á mig Always Ultra en þau ku veita öryggistilfinningu
Hvert ertu að fara? Ætlarðu að yfirgefa Þorpið?