Snobbhænsnið Bylgja

Ég er búin að komast að því að ég er agalega snobbuð.

Í flugvélinni frá Minneapolis sat ég við hliðina á gullfallegum andans manni sem hefur einstaklega fallegar hendur. Þó að hendur hans skipti engu máli í þessu samhengi verð ég að geta þess að hann er með fallegar hendur. Mér þykja nefnilega hendur skipta máli og vera stór hluti af sjarma fólks og gjóaði augunum á hans af og til alla leiðina heim.

Þessi andans maður er flottur, hefur skrifað bækur, handrit og ljóð og þýtt bókmenntir sem þykir fínt að lesa. Mér finnst voða gaman að lesa bækur sem þykir fínt að lesa og geri það inná milli. Hann var að lesa bók eftir Kurt Vonnegut en það þykir fínt að lesa Kurt Vonnegut. Ég hef lesið Sláturhús 5 eftir Kurt Vonnegut

Ég las líka í bók á leiðinni heim en því miður þykir ekki fínt að lesa bókina sem ég var að lesa. Hún er húsmæðraklám af verstu sort. Myndin á kápunni segir allt um innihaldið. Ég dauðskammaðist mín og lagði mig fram við að fela kápuna fyrir honum og passaði að hann gæti ekki lesið staf/setningu eða brot úr bókinni þar sem við sátum tiltölulega þétt saman (það er frekar þröng í Flugleiðavélunum). Af og til fussaði ég og dæsti þegar ég las eitthvað voða vitlaust og reyndi að vera svakalega bókmenntaleg á svipinn. Veit ekki hvernig til tókst en allan tíman hugsaði ég með mér af hverju í andsk. ég væri ekki með eitthvað merkilegra að lesa eins og Sjálfstætt fólk eða bara Dísu ljósálf. Allt annað en The Manning Sisters.

Fór að hugsa um þetta eftir að heim var komið og komst að þeirri niðurstöðu að ég er óttalegt snobbhænsn!

4 Responses to “Snobbhænsnið Bylgja”


  1. 1 Lára Kristín apríl 28, 2008 klukkan 5:10 pm

    Hvem VAR det egentlig? Ma’r deyr nú bara úr forvitni hvaða fagurmundaði andans maður þarna var á ferð … Þú verður að gefa hint !!

  2. 2 bylgja apríl 29, 2008 klukkan 8:38 am

    Hann býr á Álftanesi…skrifaði grein í Moggann um helgina um Californiu og heitir Sveinbjörn

  3. 3 Lára Kristín maí 1, 2008 klukkan 11:13 pm

    OK, náði því :-) Hann þýddi sláturhús 5 …

  4. 4 bylgja maí 2, 2008 klukkan 10:49 am

    Skörp ertu Lára :D
    Kannski er hann að fara að þýða Vonnegut sem hann las í flugvélinni…hmmmm spennandi


Skildu eftir svar




Fjöldi rugluhausa

  • 28,072 hits

Úr handraðanum