Fyrir nokkrum dögum rifjaði Helena upp á blogginu hennar Bjöggu gamla tíð þegar tvær ungar stúlkur skemmtu hópi eldri borgara í Norwich í Englandi með því að herma eftir Abba og Halla og Ladda (Tvær úr Tungunum var okkar besta atriði). Helena sagði mér síðan í gær að þetta hefði verið safnaðarheimili Methodista í borginni HAHAHA, hafði ekki hugmynd um það. Skemmst er frá því að segja að við slógum í gegn og um okkur var talað lengi á eftir.
Helena minnist á klæðaburð okkar við þessa skemmtun en við vorum í samfestingum (sem voru í mikilli tísku þetta sumar) og síðan með tíkó
Helena á sinn samfesting ennþá.
Ég gramsaði í gömlu myndunum mínum og fann þessa mynd af okkur Helenu í umræddum samfestingum (mamma saumaði minn og jakkann sem ég er í).
Myndin er tekin í ágúst 1980 fyrir utan Windsor kastala. Ótrúlegt en ég var orðin kynþroska á þessu tímabili
Ekki furða að ég væri ég spurð um skilríki langt fram á þrítugsaldurinn og ég komst aldrei á skemmtistaði né bannaðar myndir!!! Missti af THE SHINING og Föstudeginum þrettánda.
Mér finnst hárið á mér æðislegt og enn er permanantið í því sem ég fékk fyrir ferminguna mína fyrr um vorið (30. mars 1980). En takið eftir skónum mínum, OH MY GOD. Helenu eru þó aðeins skárri en mínir. Svakalega erum við samt sætar, saklausar stúlkur sem brosa framan í veröldina
THE 2 BABYFACES

Sýndi mínum 15 ára myndina og spurði hvort hann kannaðist við þessar blómarósir.
“hm já,þetta ert þú og hún Bylgja.”
Vá, ég bara yngdist um 20 ár…. svo kom viðbótin
“eh, mamma, var þetta talinn tískufatðanur í gamla daga?”
hehe
MADNESS lifir…hehe
Þetta var flott og við flottar!! Fórum á diskó í þessu outfitti og þurftum að berja af okkur vonbiðlana
Heyrðu, já diskóið. Man það núna
Hot Chocolate voru þá með mjög “hot” lag sem ég kann enn, en man ekki nafnið á
ég man bara eftir MADNESS og Baggy trousers. Allir röðuðu sér upp í línu og dönsuðu eins.
Snilld áttu fl.
hmmmmm já á fleiri….meðal annars úr Þórsmörk af okkur stöllum
Ég átti líka svona samfesting. Mamma saumaði hann. Við vorum allar ótrúlega flottar í þessum samfestingum!!
Benti mömmu á að kíkja á síðuna þína. Hún fór svo beint í myndaalbúmið og fann nokkrar myndir af síamstvíburunum (okkur tveimur), meðal annars teknar í einhverri skemmtidagskrá okkar á Breiðásnum. Ætla að fá þær innskannaðar og sendi þér svo
jiiiiiiminnnnnnnn eini
þær verður gaman að sjá