Í dag komst ég að því mér til mikillar ánægju að KB banki er búinn að geyma fyrir mig rúmlega 150 þúsund krónur á tveimur reikningum án þess að ég vissi. Hafði ekki hugmynd um að ég ætti peninga í bankanum, hvað þá 150 þúsund krónur. Það mætti halda að ég viti ekki aura minna tal en því fer fjarri.
Ekki leiðinleg að finna peningana sína aftur. Ég var að vísu ekkert farin að sakna þeirra en gleði mín er fölskvalaus og sönn yfir því að heimta þá aftur og ég ætla að taka vel á móti þeim
ps: það er orðið langt síðan ég keypti mér skó

Gott að finna aur einmitt þegar maður þarf nauðsynlega að kaupa skó…..
Segðu….á svo fá rauð pör
Annars er ég búin að ákveða að greiða niður smá yfirdrátt og svo fer restin á bók! Hryllilega hljómar þetta óspennandi!
PS. Er líka farin að stunda föstur
Hvernig virka föstur???
Þær virka þannig að maður fastar mörgum sinnum á dag í mjög skamman tíma