Ræð ekki við mig
Verð að skrifa þó ég hafi ekki ætlað að skrifa neitt í dag. Er greinilegur tölvufíkill
Dagurinn hefur að mestu farið í bakstur með mömmu…Sarah Bernard is my middle name eftir daginn.
Sit hér í sófanum og horfi á Aldamótabörn í RUV sem er þáttur sem að pirrar mig eins og svo margt annað smávægilegt í lífinu!!!!! Í þættinum er verið að skoða börn sem fædd eru 2000 til að sjá hvað er ólíkt með þeim og það skondna er að það sem verið er að skoða (hvað þau eru ólík) er líka notað til að skýra út af hverju þau eru ólík. Seinast þegar ég vissi hét það hringskýring og þar með EKKI viðurkennd vísindaskýring. Ekki í fyrsta sinn sem hann dregur ansi stórar ályktanir þessi hátternisfræðingur út frá pínulítilli hegðun. Er samt þokkalega skemmtilegur þáttur og í kvöld er þetta ekki eins áberandi og fyrir viku.
Er að hafa mig í jólakortin sem ég hef alltaf í bundnu máli. Þarf að koma mér í gírinn til að komast á loft með skáldagyðjunni
Stefnir í tónleika með GLE á sunnudaginn, gaman gaman.
Á fimmtudaginn síðasta fór ég í jólaboðið í Jólahúsið mikla sem ég skrifaði um í fyrra HÉR.
Á laugardaginn fór ég í stórskemmtilegt afmæli eins og ég var búin blaðra um og var að sjálfsögðu í leðurbuxunum og nýju skónum
ER BERFÆTT
desember 11, 2007 kl. 8:51 am
Flott og jólalegt lúkk! Hjá mér engar sörur þetta árið. Of löt! kv kris
desember 11, 2007 kl. 12:31 pm
Miðar á tónleikana kl.17 komnir í hús….
Mér finnst alveg ótrúlegt að enginn skuli hafi komentað á flottu kaffikrúsina….
desember 12, 2007 kl. 9:33 am
þetta er engin KRÚS heldur kanna úr postulíni sem er handmáluð! Kallar þú kannski blússu skyrtu og súkkulaði kakó???
Er þetta ekki örugglega á sunnudaginn?
Luve
desember 12, 2007 kl. 11:45 am
Þar fór ég með það……. Jújú kirkjuferð á sunnudaginn