Plastpokar, Belgía……….og……………leðurbuxur
Þá er ég komin til Belgíu, búin að koma mér fyrir á Crown Plaza og sit hér ísköld við tölvuna með sultardropana í nefinu. Já hér er skítkalt og ég næ ekkert að hækka hitann á þessu sjálfstýringarkerfi.
Ferðin út gekk vel. Ég virkilega lagði mig fram um að láta öryggisgæsluna á Leifsstöð ekki fara í taugarnar á mér. Það gekk illa verð ég að viðurkenna ekki síst þar sem búið er að breyta kerfinu. Núna fær maður ekki þessa h e l v í t i s plastpoka lengur heldur á maður að skaffa þá sjáfur. Ég hafði að sjálfsögðu ekki með mér glæran plastpoka með rennilás. Þar að leiðir þurfti ég að dröslast niður í komusalinn og fjárfesta í einum í 10-11 sem selur þá á 10 kr stykkið. Ungi maðurinn sem afgreiddi mig var svo elskulegur að gefa mér pokann því ég var með enga peninga á mér…bara kort. Loksins þegar ég var búin að drösla mér upp aftur, setja fátæklegar birgðir mínir af snyrtivörum í glæran pokann, afklæðast, taka af mér beltið og taka tölvuna upp var kominn frekar ljótur svipur á mig (minnti örugglega á ljóta svipinn hennar Aðalheiðar). Tollararnir (eða eru þetta öryggisverðir) tóku ekkert eftir ljóta svipnum því þeir voru svo uppteknir við að slúðra um tiltekinn s..fræðing af Suðurnesjum sem ég kannast við. HEHE það var fyndið. Ég heyrði ekki mikið en drengurinn er greinilega mikið á milli tannanna á fólki, þau voru að slúðra BIG TIME!
Næsta stopp var Kastrup en mér finnst ég orðin nokkuð heimavön þar enda ekki nema mánuður síðan ég var það síðast og þar áður í maí. Þar þvældist ég um en var alltaf með varann á mér því það situr enn í mér af hafa næstum misst af fluginu heim þarna í maí. Þegar maður þvælist um þá sér maður ýmislegt og eins og svo oft áður þegar ég þvælist um og er alls ekki að leita að neina þá sé ég eitthvað sem ég fell fyrir….og það voru ekki skór í þetta skiptið heldur LEÐURBUXUR. Var bara að dóla mér þarna um gangana þegar ég sé eitthvað útundan mér vinstra megin og eftir að ég mátaði þær var ekki aftur snúið
svo eru þær líka hrikalega þægilegar og hlýjar (er þetta ekki góð afsökun fyrir kaupunum?) og rúsínan í pylsuendanum er að ég fékk vaskinn endurgreiddan
þannig að í raun og veru var ég að græða helling.
Flugið til Brussel gekk vel og engin óhöpp né slys þó flugvélin væri Airbus og flugfélagið SAS. Eina sem truflaði mig var hávaðinn í vélinni. Mér finnst best að ég er eiginlega alveg búin að komast yfir flughræðsluna sem fylgdi mér hérna fyrir ekki svo löngu síðan. Er meira að segja hætt að svitna í lófunum
Næsta lending hjá mér er rúmið enda klukkan rúmlega tólf að belgískum tíma. Ætla að leggjast í rúmið með pappíra sem ég þarf að lesa yfir fyrir fundinn á morgun.
Góða nótt
Er í inniskóm sem ég tók af hótelinu í Las Vegas
nóvember 14, 2007 kl. 7:48 pm
Iss Byglja. Það þýðir nú lítið að setja upp ljótan svip. Þú verður að gera eins og í gamla daga og tilkynna skýrt og skorinort “Nú er ég ÍLL”
nóvember 15, 2007 kl. 11:46 am
……………maður getur lent í vandræðum að ybba gogg við tollara og starfsmenn flugvalla