Mig vantar skó

Þar sem ég er ein af þessum konum sem á aðeins 1% af eignum í heiminum þá ákvað ég að fara í gegnum skósafnið mitt með það í huga að telja þá fram til skatts á árinu í þeirri viðleitni að auka eignir mínar :)

Tók fram helstu pörin mín sem ég nota um þessar mundir og eru í uppáhaldi (alls ekki tæmandi). Sé ég á alls ekki nóg af skóm og þetta dugar mér engan vegin til að komast yfir eitt prósentið. Þarf að bæta úr skófátækt minni á þessu ári sem hefði verið frábært áramótaheit ef ég væri ekki með eitt gamalt í gangi sem ég hef ekki enn náð að standa við.

Því mun ég kaupa fleiri skó um leið og ég verð búin að borga skuld mína við Macys en ég eyddi rúmum 18 þúsund krónum í augnkrem og smyrsl svo ég yrði eins good looking og Michele vinkona mín en því miður, “I am still looking like sh..”
skor.JPG

3 svör to “Mig vantar skó”

  1. Harpa Dís segir:

    ég skal láta þér eftir mitt eina skópar hehehe

  2. Tjaaa vantar þig ekki bara réttu tegundina af skóm ?? Orðin frekar skökk og föst, veitir ekki af fleiri fótlaga skóm sem þú kæmir innleggjunum í ;) hehe

  3. …elsku Harpa ekki get ég tekið af þér eina parið sem er auk þess örugglega of lítið.
    Mér þykja commentin sem ég fæ ekki nógu göfug og í anda þess takmarks sem ég hef, það er að auka eignir mínar. Hitti vitrar konur sem höfðu litið á síðuna og þær höfðu orði á að ég ætti nær eingöngu svarta skó sem ég tek sem vinsamlega ábendingu um að kaupa mér fleiri en svo sannarlega verða það ekki fótlagaskór ;) eitt par er alveg nóg

Skildu eftir svar