Loksins, loksins

Loksins loksins segi ég eins og ónefndur gagnrýnandi þegar fyrsta bók Nóbelsskáldsins kom út…ég er byrjuð að blogga en hef afskaplega lítið að segja (eða þannig) og fæ örugglega engan Nóbel né Grammy.

Hef lengi verið að spá í þetta því ég hef stundum svo mikla löngun til að fá útrás fyrir vitleysuna og rugluna í sjálfri mér og varð enn heitari í fingrunum þegar ég áttaði mig á því að alþingiskosningar nálgast.

Stefni að því að laga og bæta þessa síðu og skrifa af og til og stundum ótt og títt og vil endilega fá að heyra frá ykkur sem þetta lesið. Vona að hann Maggi skrifi skemmtileg comment :)

Eins mun ég bæta við hlekkjum þegar fram líða stundir

 Lifið heil :)

6 svör to “Loksins, loksins”

  1. Djöfulsins snilld verður þetta Bylgja. Loksins loksins, segi ég bara. Opinberaðu nú alla þína villtustu drauma… or not.

    kveðja úr Domus Medica
    Maggi Magg

  2. Til lukku með þetta stórglæsinlega blogg. Efast ekki um að mjög þarfar og tímabærar umræður muni fara hér fram ;)

  3. Þetta líst mér vel á Bylgja og kominn tími til! Sjálf aðstoða ég alltaf hvolpinn við að blogga og það er bara gaman – en lítil stjórnmálaumræða er þar í gangi. Fylgist spennt með ;-)

    Maja

  4. Sæl

    Mín bara klökk…fólk að lesa mitt blogg. Elsku Maja mun fylgjast með honum Aðils reglulega, en heima hjá mér er enginn Aðils heldur lítil Nóra sem er voða sæt læða sem dóttirin bar heim í vor.

  5. Guðrún Lilja segir:

    Vá – sko mína – líst vel á….
    Nú mun ég fara mæta fyrr í vinnuna á morgnanna til að geta fylgst spennt með ævintýrum úr Garðabænum….
    Mínar bestu
    Guðrún

  6. Helga Arnfríður segir:

    Þetta er allt of spennandi elsku Bylgja. Var annars ekki gaman í gær?
    Er á leið heim úr vinnu í krosssauminn :-) þú veist, ævintýralegt og spennandi líf!!!

Skildu eftir svar