Fimm frábærar gátur

Posted in Dægurskvaldur on nóvember 10, 2009 by bylgja

1. A murderer is condemned to death. He has to choose between three rooms. The first is full of raging fires, the second is full of assassins with loaded guns, and the third is full of lions that haven’t eaten in 3 years. Which room is safest for him?

2. A woman shoots her husband. Then she holds him under water for over 5 minutes. Finally, she hangs him. But 5 minutes later they both go out together and enjoy a wonderful dinner together. How can this be?

3. What is black when you buy it, red when you use it, and gray when you throw it away ?

4. Can you name three consecutive days without using the words Wednesday, Friday, or Sunday?

5. This is an unusual paragraph. I’m curious as to just how quickly you can find out what is so unusual about it. It looks so ordinary and plain that you would think nothing was wrong with it. In fact, nothing is wrong with it! It is highly unusual though. Study it and think about it, but you still may not find anything odd. But if you work at it a bit, you might find out. Try to do so without any coaching!

Svör má senda á bylgjav@gmail.com

Kristjana skuldar mér gommu!

Posted in Dægurskvaldur on nóvember 6, 2009 by bylgja

Alltaf er maður að græða…komst að því áðan að Kristjana skuldar mér helling af peningum. Hún efast um að vera borgunarmanneskja fyrir þessu en ég tek VISA…

The New me

Posted in Dægurskvaldur on nóvember 4, 2009 by bylgja

Í dag fer ég í klippingu – sem betur fer. Er að drukkna úr hári og hugnast ekki liturinn.

Mér finnst ég svona…

Kris_bad_hair_day

og ætla að verða svona:

eva-longoria-bebe-sport03

(mig hefur alltaf langað í gulan bíl)

Ég er búin að kaupa mér þræl

Posted in Hampistlar on nóvember 3, 2009 by bylgja

Ég er búin að kaupa mér þræl. Keypti hann í síðustu viku. Á milli okkar var gert samkomulag um að ég ætti hann og réði yfir honum. Hann samþykkti þetta og var mjög sáttur við sín skipti og kjör. Þrællinn minn á að vinna ýmis verk fyrir mig sem mér hugnast sem kannski eru ekki mjög næs en mér er alveg sama, hann samþykkti þetta sjálfviljugur og var bara ánægður með samninginn. Þrællinn minn var blankur fyrir og þarf pening til að sjá sér farboða þannig að ég get ekki séð en að þetta samkomulag henti okkur báðum. Þrællinn er minn og ég á hann og ræð yfir honum. Mér er alveg sama þó þrælahald hafi verið aflagt fyrir einhverjum árum því þrællinn minn vildi þetta alveg sjálfur og auðvitað hefur hver og einn frelsi yfir sér sjálfur.

Skiptið nú út orðinu þræll fyrir vændiskonu. Fáránlegt er það ekki?

I’m rich…I’m filthy rich!!!

Posted in Fyndið on október 29, 2009 by bylgja

TRANSFER OF THIRTY SIX MILLION SEVEN HUNDRED AND FIFTY NINE THOUSAND POUNDS STERLINGS

Greetings,

Hello Friend

Permit me to inform you of my desire of going into business relationship with you. I Come across your profile and have Decided to get in touch with you after my prayer, to see if you can help me alliviate this problem. I can’t imagine how you will feel receiving a sudden letter from a remote country far away and probably from someone you are not closely related with. But all the same, I believe we do not need to be of blood relatives before we can establish cordial relationship,

My name is Mr.Kieran Dutch and I work in the International Operation Department in a Bank here in London.I feel quite safe dealing with you in this important business Though,this medium (Internet) has been greatly abused, I choose to reach you through it because it still remains the fastest medium of communication.However, this correspondence is unofficial and private, and it should be treated as such. At first I will like to assure you that this transaction is 100% risk and trouble free to both parties.

WE WANT TO TRANSFER OUT MONEY FROM OUR BANK HERE IN LONDON THE FUND FOR TRANSFER IS OF CLEAN ORIGIN THE OWNER OF THIS ACCOUNT IS A FOREIGNER, a program leader, Until his death,The Late Prime Minister, Mr. Rafik Hariri, has a huge investment here in the United Kingdom and all over theworld, as a matter of fact he has the sum of (THIRTY SIX MILLION SEVEN HUNDRED AND FIFTY NINE THOUSAND POUNDS STERLINGS) in his account here in London which he deposited as a family valuables.

The family do not know about this deposit.I was on a routine inspection that I discovered a dormant domiciliary account with a BAL. Of (THIRTY SIX MILLION SEVEN HUNDRED AND FIFTY NINE THOUSAND POUNDS STERLINGS).On further discreet investigation, I also discovered that the account holder has passed away (dead) leaving no beneficiary to the account. The bank will approve this money to any foreigner because the former operator of the a/c is a foreigner.I am certainly sure that nobody will come again for the claim of this money. A foreigner can only claim this money with legal claims to the account Holder, therefore I need your co-perationin this transaction.

I will provide all necessary information needed in order to claim this money, Hoping in God that you will never let me down now and in future.o.k! Rafik Bahaa Edine Hariri (November 1, 1944 – February 14, 2005), married to Nazek Audi Hariri,was a Lebanese self-made billionaire and business tycoon, and was five times Prime Minister of Lebanon (1992-1998 and 2000-2004) before his last resignation from office on October 20, 2004.The late Rafik Hariri died on February 14, 2005 when explosives equivalentto around 300 kg of C4 were detonated as his motorcade drove past the Saint George Hotel i n the Lebanese capital, for more information please log on to (www.rhariri.com).

I WANT TO TRANSFER THIS MONEY INTO A SAFE FOREIGN ACCOUNT ABROAD BUT I DON’T KNOW ANY FOREIGNER WHOM I CAN TRUST, I KNOW THAT THIS MESSAGE WILL COME TO YOU AS A SURPRISE AS WE DON’T KNOW OURSELVES BEFORE, BUT BE SURE THAT IT IS REAL AND A GENUINE BUSINESS. I CONTACT YOU BELIEVING THAT YOU WILL NOT LET ME DOWN ONCE THE FUND GOES INTO YOUR ACCOUNT.

Let me hear from you URGENTLY by Email

Best Regards
Mr Kieran S. Dutch

Er ekki með svínaflensu

Posted in Útrás fyrir ruglu on október 21, 2009 by bylgja

Hins vegar langar mig í skó skó skó skó nei mig langar ekki einu sinni í skó held ég sé veik nei ég er ekki veik ekki einu sinni með svínaflensu né aðra óværu heldur er ég eitthvað svo andlega sinnulega laus við allt sem einkennist af frumlegheitum eða andlegum þroska þrátt fyrir að hafa farið í svett hjá heiðari og nonna sem hugsa um heilsuna en by the way reykja eins og strompar og halda að lakkrís sé hollur kannski ég þurfi að gera eitthvað nýtt fara á námskeið og hlusta á hemisync til að laga í mér heilann en ef til vill er bara best að vera eins og maður er ég ætla að halda áfram að prjóna skupluna á dóttur mína sem ég er búin að rekja upp 9 sinnum og halda áfram og skrifa ógurlega langar setningar í belg og biðu til að æfa mig í því að nenna að skrifa og hætta að horfa á fréttir og icesave umfjöllun og hrun sem fær mig til að hugsa um jóhannes sem er mynd sem mig langar mikið að sjá og fer kannski á í kvöld en er þetta ekki að verða alveg nógu löng setning?
Lifið heil

Þetta mál er allt annað en lagt var upp með

Posted in Dægurskvaldur on ágúst 27, 2009 by bylgja

Þetta mál er allt annað en lagt var upp með” er nýjasta mantra Sjálfstæðisflokksins. Mér finnst það segja allt sem segja þarf um stefnu flokksins síðustu 10-12 ára!!!
Þeir (Sjálfstæðismenn) halda því fram að Icesave samningurinn sé annar í dag en hann var þegar skrifað var undir til að halda andlitinu út á við (eða inná við). Einhvern vegin á tengi ég þennan frasa þeirra svo sterkt við Nýju fötin keisarans og fæ mjög svo skýra mynd í hugann. Í þeirri mynd eru tveir síðustu formenn flokksins klæðalausir og núverandi formaður gengur í humátt á eftir þeim og reitir af sér spjarirnar!
Í mínum huga er Sjálfstæðisflokkurinn allt annar flokkur en lagt var upp með þegar hann var stofnaður – hann týndi sjálfum sér og það má kannski segja að Samfylkingin hafi stolið flestum þeim málum frá honum sem hann átti. Einu sinni átti Sjálfstæðisflokkurinn slagorðið Stétt með stétt og margir gátu samsamað sig með helstu stefnumálum flokksins. Einhvers staðar á leiðinni þá enduðu þeir á öðrum stað en lagt var upp með!!
Ég ætla aldrei að gleyma því…

Að svara spurningu með spurningu

Posted in Dægurskvaldur on ágúst 26, 2009 by bylgja

Almennt finnst mér það frekar leiðinlegur siður að svara spurningu með spurningu en ég hef tekið upp þann ósið!

Í hvert sinn sem einhver spyr hvort mér finnist þetta og hitt ekki agalegt í þessu samfélagi þá svara ég með spurningunni: Hefur þú einhvern tíman kosið Sjálfstæðisflokkinn?

Þannig þagga ég niður í öllum sem eru að tuða yfir háum vöxtum, genginu, skuldunum, Icesave, efnahagsmálum, skuldastöðu heimilanna, þjóðflutningum, fátækt í samfélaginu, niðurskurði, vanmætti ríkisstjórnarinnar, osfrv.

Svo vil ég líka benda að ef við viljum að einhver biðjist afsökunar á gerðum sínum þá verðum við jafnframt að vera tilbúin að fyrirgefa viðkomandi. Það er nefnilega miklu erfiðara…

Hvernig má það vera

Posted in Hampistlar on júní 22, 2009 by bylgja

…að í öllum íþróttahúsum og sundstöðum landsins eru gosdrykkjasjálfsalar og íspinnasjálfsalar? Svo ekki sé minnst á pysluvagnana á hlaðinu. Þessi íþróttahús eru þó oftar en ekki eign sveitarfélaganna og á þeirra ábyrgð. Af hverju hafa Íþrótta- og tómstundaráð sveitarfélaganna ekki úthýst sætum gosdrykkjum og orkudrykkjum úr sínum húsum? Hefur örugglega ekki einu verið rætt einu sinni og ekki til sem hugmynd í huga þeirra sem þar ráða.

VIÐ ÍSLENDINGAR ERUM NEFNILEGA SVO ROSALEGA FLINK Í AFKSIPTALEYSI SVO EKKI SÉ MINNST Á HÖMLULEYSIÐ.

Er eitthvað að undra að við séum feit eða með skemmdar tennur? Íslendingar hafa á síðustu árum látið frjálsyggju”fíflin” segja sér að það megi ekki hafa áhrif á neyslu fólks á “óhollari” matvælum. Allir áttu að hafa vit fyrir sér sjálfir og geta lesið í fræðslubæklingum og auglýsingum í strætóskýlum að þeir eiga að bursta í sér tennurnar. Neysluskatta mátti ekki leggja á, þó vitað sér að þeir hafa áhrif neysluna. Því sé ég ekkert að sykurskatti ríkisins en er hins vegar mjög ósátt við að það sé sykurskattur á kolsýrðu vatni, það er rangt og dæmi um hve lítið er hugsað um skatta sem tæki til að hafa áhrif á hegðun!

Áfengi var nauðsyn í matvörubúðir þó að Alþjóðaheilbrigðismálalstofnunin vari eindregið við því og það er ekki þannig í öllum löndum að áfengi sé hægt að kaupa í matvörubúðum eins og flestir Íslendingar virðast halda.
Einhvern vegin finnst mér þingmálið áfengi í matvörubúðir vera bautasteinn sjálfstæðisflokksins.

Fyrirgef oss vorar skuldir

Posted in Hampistlar on júní 9, 2009 by bylgja

Það er greinilegt að Breta og Hollendingar ætla ekki að fyrirgefa okkur vorar skuldir. Þá spyr ég því ættu þeir að gera það? Þær skuldir sem stofnað er til í íslensku nafni eru íslenskar skuldir. Ef hér hefði verið útlenskur banki þá hefði nú eitthvað í okkur heyrst ef þeir hefðu ekki ætlað að standa við sínar skuldbindingar við gjaldþrot eða hrun. Vissulega var ekki til þessa skulda stofnað af okkur Íslendingum en við kusum þó yfir okkur þau stjórnvöld sem einkavæddu bankanna. Sömu stjórnvöld sem héldu að sér höndum þrátt fyrir viðvaranir. Það er ekki eins og það sé eitthvað nýtt í þessu og ekki legið fyrir síðan í haust að við værum í vondum málum. Hélt í alvörunni einhver að við þyrftum ekki að borga? Að við Íslendingar værum enn og aftur yfir aðra hafin? Að við værum svo spes að um okkur giltu aðrar reglur. Life is a bitch og við smáþjóð utan ESB. Eflaust er það rétt að regluverk Evrópu var ekki í lagi og spurning um margt í þessum málum. Og svo sannarlega er ég ekki sátt við að þurfa hugsanlega að borga þessar háu upphæðir og en er þó fegin að málið er frágengið.
Mér er algerlega á huldu hverju fólkið var að mótmæla í gær á Austurvelli. Held að það hafi fyrst og fremst verið svekkelsi með Steingrím Joð sem eins og svo margir átti auðvelt með að gagnrýna þegar hann var í stjórnarandstöðu og vissi ekki eins mikið og hann veit núna. Vona bara að allt komi upp á yfirborðið þegar tíminn líður og yfir þessi mál fennir.
Mér finnst þetta leiða enn og aftur í ljós hvað Íslendingar eru barnalegir upp til hópa. Höfum í huga að ófæddir kynslóðir Þjóðverja þurftu að borga fyrir syndir nasista árum saman.
Langar að endingu að benda á pistil Silju Ómars

Er í nýju rauðu skónum mínum